Þyrluflug veldur titringi við ferðamannastaði

Md_helicopters_md.500e_g.sscl_arp.jpg
Auglýsing

Vil­borg Hall­dórs­dótt­ir, leik­kona og leið­sögu­mað­ur­, ­gagn­rýnir harð­lega óheft þyrlu­flug með ferða­menn við helstu ferða­manna­staði lands­ins. Vil­borg var stödd ásamt hópi ferða­manna við Gull­foss á dög­un­um, þegar þyrlu bar að garði, og skrifar um lífs­reynsl­una á Face­book.

„Í dag var ég uppi á Gull­fossi í feg­ursta vetr­ar­veðri sem hægt er að upp­lifa, skaf­heiður him­inn og skyggnið algert.... þar mátti ég sætta mig við það, að þyrla sveim­aði yfir mér í óra­tíma með til­heyr­andi hávaða­meng­un. Kannski með 2-3 far­þega inn­an­borðs. Ætli þeim 250 manns sem voru að njóta fossa og nátt­úru hafi verið skemmt!? Ætli þeir séu komnir útí hina íslensku nátt­úru til að sitja undir slík­u!?“

Vilborg Face­book stöðu­færsla Vil­borg­ar.

Auglýsing

Vil­borg veltir fyrir sér hversu lengi Ísland verði spenn­andi áfanga­staður fyrir áhuga­sama ferða­menn með þessu fram­haldi. „Þessi hávaða­mengun er eins og sígar­ettu­meng­un.... fjöldi líður fyrir fáa. Eiga hund­ruðir að líða fyrir leti og ríki­dæmi fárra og sjálf­valdra? Hvenær ætlum við að fara að setja reglur um t.d. þyrlu­flug yfir þjóð­görð­u­m?“

Engar flug­tak­mark­anir í þjóð­görð­unum



Flug­vélar og þyrlur lúta sömu lögum um loft­ferð­ir. Sam­kvæmt reglu­gerð um flug­reglur er óheim­ilt að fljúga yfir þétt­býlum hlutum borga, bæja eða þorpa eða yfir úti­sam­komum í minni hæð en 1.000 fet­um, eða 300 metr­um. Ann­ars stað­ar, það er utan þétt­býlis eða manna­móta, er bannað að fljúga loft­fari í minni hæð en 500 fet­um, eða 150 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Þó er í gildi bann við lág­flugi yfir friðlandi Þjórs­ár­vera vegna gæsa­varps. Þar er flug undir 3000 feta hæð bannað á tíma­bil­inu 10. maí til 10. ágúst ár hvert.

Engar sér­stakar tak­mark­anir eru hins vegar í gildi er varða flug loft­fara í þjóð­görðum á Íslandi, en útsýn­is­flug með ferða­fólk hefur auk­ist gríð­ar­lega hér­lendis sam­hliða spreng­ingu í komu erlendra ferða­manna hingað til lands. Þá hefur kvört­unum til Sam­göngu­stofu vegna útsýn­is­flugs á ferða­manna­stöðum fjölgað sömu­leið­is.

Á síð­asta ári lagð­i bæj­ar­ráð Ísa­fjarð­ar­bæjar fram til­lögu um að banna lág­flug yfir friðland­inu á Horn­strönd­um, eftir að fram kom hyg­myndir um þyrlu­flug á svæð­inu, en til­lagan tók mið af áður­nefndu flug­banni yfir Þjórs­ár­ver­um.

Þing­valla­nefnd hefur fjallað um þyrlu­flug, og hefur rætt hvort ástæða sé til að setja skýr­ari reglur um útsýn­is­flug í þjóð­garð­in­um. Ólafur Örn Har­alds­son, þjóð­garðs­vörður á Þing­völl­um, segir í sam­tali við Kjarn­ann að færst hafi í vöxt að gestir þjóð­garðs­ins kvarti undan ónæði vegna þyrlna og flug­véla. Hann segir að víða erlendis séu í gildi tak­mark­anir um útsýn­is­flug í þjóð­görð­um, á frið­lýstum svæðum eða á vin­sælum ferða­manna­stöð­um, eða það háð sér­stöku leyfi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None