Þýsk fyrirtæki og almenningur vilja að Grikkir yfirgefi evruna

h_51918737-1.jpg
Auglýsing

Flestir stjórn­endur þýskra fyr­ir­tækja vilja að Grikkir yfir­gefi evr­una. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem þýska við­skipta­blaðið Hand­els­blatt fram­kvæmdi. Í henni kom í ljos að 44 pró­sent þeirra 673 stjórn­enda þýskra fyr­ir­tækja sem spurðir voru um málið vildu að Grikkir hefðu frum­kvæði að því að hætta með evru sem gjald­mið­il. Auk þess töldu þrettán pró­sent þeirra að reka ætti Grikki úr mynt­sam­band­inu. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Átta af hverjum tíu þýskum stjórn­endum telja að ef Grikkir myndu yfir­gefa evr­una þá myndi það ekki hafa nei­kvæð áhrif á önnur ríki sem eru hluti af mynt­sam­starf­inu og minna en fimmt­ungur aðspurðra hafði áhyggjur af efna­hags­legri keðju­verkun þess.

Yanis Varoufakis fjármálaráðherra Grikklands og Alexis Tsipras forsætisráðherra landsins. Yanis Varoufa­kis fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands og Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Auglýsing

Þetta er tölu­verður við­snún­ingur á við­horfi gagn­vart því að Grikkir yfir­gefi evr­una. Á meðan að á evru­krís­unni stóð, á árunum 2010 til 2012, þá höfðu fyr­ir­tæki og stjórn­mála­menn í Evr­ópu miklar áhyggjur af þeim dóminó-á­hrifum sem það gæti valdið ef Grikkir hættu að not­ast við evru. Áhyggj­urnar stöf­uðu ekki síst af for­dæm­inu sem því myndi fylgja, að ríki gæti yfir­gefið mynt­sam­starf­ið. Það myndi skapa mikið óör­yggi innan þess að ef harðna færi á dalnum gætu ríki alltaf hótað að hætta. Hægt væri að ráða við brott­hvarf Grikk­lands en brott­hvarf til dæmis Portú­gal gæti leitt til brott­hvarfs Spánar og svo fram­veg­is. Nú virð­ast þessar áhyggjur að mestu horfn­ar.

Það eru ekki bara fyr­ir­tækin í Þýska­landi sem hafa þá skoðun að Grikkir ættu að yfir­gefa mynt­sam­starf­ið. Í könnun sem fram­kvæmd var í mars kom í ljós að rúmur helm­ingur almenn­ings er á þeirri skoðun líka.

Í Grikk­landi er staðan hins vegar allt önn­ur. Þar vill meiri­hluti lands­manna vera áfram hluti af evru­svæð­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None