Þýska þingið samþykkir samkomulagið við Grikkland - 50 þingmenn meirihluta á móti

h_51918737-1.jpg
Auglýsing

Þýska þingið hefur sam­þykkt sam­komu­lag evru­ríkj­anna við Grikk­land, með atkvæðum 439 þing­manna gegn 119. 50 af þeim 119 sem kusu gegn sam­komu­lag­inu eru stjórn­ar­þing­menn.

Þegar Ang­ela Merkel kansl­ari ávarp­aði þingið fyrir atkvæða­greiðsl­una í morgun lagði hún áherslu á að þrír kostir hafi verið í stöð­unni. Sá fyrsti að beygja reglur Evr­ópu svo mikið að þær hefðu ekki verið neins virði leng­ur. Annar kost­ur­inn hefði verið að gef­ast upp og reyna ekki að bjarga Grikk­land­i. Það hefði þýtt að Evr­ópa myndi horfa á upp á Grikk­landi blæða, og algjör ringul­reið hefði fylgt. Hvor­ugur þessa kosta hefði komið til greina.

Því hafi þurft að reyna í síð­asta skipti að sjá hvort það væri mögu­legt að ná sam­komu­lagi meðal allra 19 evru­ríkj­anna. Þrátt fyrir öll bakslögin hafi þetta tek­ist á end­anum og sam­komu­lagið hefði byggst á gild­unum um evr­ópska sam­stöðu og ábyrgð ríkja. Hún sagði einnig að það væri ekki almenn­ingi í Grikk­landi að kenna hvernig fyrir þeim er kom­ið. Hún við­ur­kenndi einnig að til­laga Þjóð­verja um tíma­bundið brott­hvarf Grikk­lands úr evru­sam­starf­inu hafi ekki hlotið neinn hljóm­grunn meðal hinna evru­ríkj­anna.

Auglýsing

Stjórn­ar­and­staðan gagn­rýndi sam­komu­lagið harð­lega. Sahra Wagenknecht í vinstri­flokknum Die Linke sagði sam­komu­lagið veru­lega gall­að, vegna þess að það geri ekki ráð fyrir þeirri miklu nið­ur­fell­ingu skulda sem Grikkir þurfi svo nauð­syn­lega á að halda. Ekki sé langt að bíða þangað til sam­komu­lagið falli um sjálft sig og það þurfi að byrja aft­ur. Hún líkti fjár­mála­ráð­herr­anum Wolf­gang Shäu­ble við tali­bana, og sagði hann nið­ur­skurð­ar­tali­bana. Sam­flokks­maður hennar Klaus Ernst sagði stjórn­völd í Þýska­landi hafa tekið þátt í því að kúga Grikk­land.

Aust­ur­ríska þingið sam­þykkti líka í dag að ganga til við­ræðna við Grikk­land. Enn eiga bæði Lett­land og Eist­land eftir að ræða málið í þingum sín­um. Franska þingið er þegar búið að sam­þykkja málið með miklum meiri­hluta og í Finn­landi var 25 manna þing­nefnd látin ákveða nið­ur­stöð­una, og hún gaf sam­þykki sitt. Spænska þingið þarf ekki að sam­þykkja sam­komu­lagið en Mari­ano Rajoy for­sæt­is­ráð­herra ætlar samt sem áður að láta þingið ræða og kjósa um mál­ið. Önnur evru­ríki munu ekki kjósa um mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None