Tíu breskir forstjórar fengu 32,2 milljarða króna í laun á árinu 2014

1024px-Martin_Sorrell_-_World_Economic_Forum_Annual_Meeting_Davos_2010.jpg
Auglýsing

For­stjórar stærstu fyr­ir­tækja Bret­lands fengu 183 sinnum hærri laun en með­al­verka­mað­ur­inn í Bret­landi á árinu 2014. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá hug­veit­unni High Pay Centre sem birt var í gær.

Þar segir að kaup for­stjóra þeirra 100 fyr­ir­tækja sem skráð eru í kaup­höll­ina í London (FTSE 100) hafi sam­tals verið 4.964 millj­ónir punda,  rúm­lega eitt þús­und millj­arðar króna, á árinu 2014. Sam­an­lögð laun for­stjór­anna 100 hafa hækkað um 17 pró­sent frá árinu 2010. Tíu hæst­laun­uð­ustu for­stjórn­arnir voru sam­tals með 156 millj­ónir punda í laun, eða um 32,2 millj­arða króna. Það þýðir að með­al­laun hvers þeirra voru 3,2 millj­arðar króna, sem þýðir að mán­að­ar­launin voru að með­al­tali um 269 millj­ónir króna á mán­uði.

Í skýrsl­unni kemur fram að hlut­hafar þeirra fyr­ir­tækja sem skráð eru í kaup­höll­ina í London hafi rétt til að koma á fram­færi mót­mælum vegna launa­kjara en ein­ungis 6,4 pró­sent þeirra gerðu það að með­al­tali á síð­asta ári.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu vegna útkomu skýrsl­unnar er haft eftir Deboruh Hargr­ea­ves, stjórn­anda hjá High Pay Centre, að launa­pakkar eins og þeir sem tíðkast hjá skráðum fyr­ir­tækjum í Bret­landi gangi mun lengra en það sem gæti talist skyn­sam­legt og nauð­syn­legt við að umb­una og hvetja stjórn­end­ur. Lík­leg­ast sé að stjórn­skipan fyr­ir­tækj­anna sé illa haldin af veik­leikum og hags­muna­tengsl­um, með þessum afleið­ing­um.

Tíu launa­hæstu for­stjór­arnir eru:



10. Bob Dudley, for­stjóri BP: 9,29 millj­ónir punda (1.920 millj­ónir króna)

Bob Dudley, forstjóri BP, sem hét áður British Petroleum. Bob Dudley, for­stjóri BP, sem hét áður Brit­ish Petr­o­le­um.

  1. Don Robert, fyrrum for­stjóri Exper­i­an: 9,87 millj­ónir punda (2.040 millj­ónir króna)

  2. Ian Gor­ham, for­stjóri Hargr­ea­ves Lands­down: 10,61 milljón punda (2.193 millj­ónir króna)

  3. Rakesh Kapoor, for­stjóri Reckitt: 11,24 millj­ónir punda (2.323 millj­ónir króna)

  4. Ant­onio Horta-Osorio, for­stjóri Lloyds bank­ans: 11,54 millj­ónir punda (2.385 millj­ónir króna)

  5. Tidjane Thi­am, fyrrum for­stjóri Pru­dential (nú for­stjóri Credit Suisse bank­ans): 11,83 millj­ónir punda (2.445 millj­ónir króna)

Tidjane Thiam, fyrrum forstjóri Prudential (nú forstjóri Credit Suisse bankans). Tidjane Thi­am, fyrrum for­stjóri Pru­dential (nú for­stjóri Credit Suisse bank­ans).

  1. Peter Long, for­stjóri The Tui Tra­vel: 13,33 millj­ónir punda (2.755 millj­ónir króna)

  2. Erik Eng­strom, for­stjóri Relx Group: 16,18 millj­ónir punda (3.473 millj­ónir króna)

  3. Ben Van Beur­den, for­stjóri Royal Dutch Shell: 19,51 milljón punda (4.032 millj­ónir króna)

  4. Sir Martil Sorrell, for­stjóri WPP: 42,98 millj­ónir punda (8.884 millj­ónir króna)

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None