Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_51957911-1.jpg
Auglýsing

Fjöl­mið­ill­inn Business Insider tekur reglu­lega saman lista yfir tíu mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag, að þeirra mati. Þar er ekk­ert að finna um ramma­á­ætl­un, íslenskar kjara­deil­ur, hús­næð­is­frum­vörp Eyglóar Harð­ar­dóttur eða ummæli Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra um helg­ina. Hér er því listi dags­ins í dag.



  1. Íraski her­inn hóf gagn­sókn gegn Íslamska rík­inu við borg­ina Ramadi á laug­ar­dag, viku eftir að að sam­tökin náðu borg­inni á sitt vald.


  2. Að minnsta kosti 13 manns lét­ust og þús­undir heim­ila urðu fyrir skemmdum þegar hvirf­il­bylur gekk yfir norð­ur­hluta Mexíkó.


  3. Neyð­ar­á­standi hefur verið lýst yfir í Texas eftir að þrír lét­ust vegna skyndi­legra flóða.


  4. Lýð­flokk­ur­inn, sem leiðir rík­is­stjórn Spán­ar, hlaut á sunnu­dag verstu útreið sína í meira en tvo ára­tugi þegar sveita­stjórn­ar­kosn­ingar fóru fram í land­inu. Þing­kosn­ingar fara fram á Spáni í nóv­em­ber.


  5. David Camer­on, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hitti Jean Claude Juncker, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, á mánu­dags­kvöld til að ræða end­ur­bætur á sam­starfi innan sam­bands­ins.


  6. Ein stærsta her­þotu­æf­ing Evr­ópu hófst í dag nálægt landa­mærum Rúss­land. Auk aðild­ar­ríkja NATO taka Sví­þjóð, Finn­land og Sviss þátt í æfing­unni sem er ætlað að kanna sam­vinnu milli þátt­töku­land­anna.


  7. Japan mun í fyrsta sinn taka þátt í her­æf­ingu með Banda­ríkj­unum og Ástr­alíu í sum­ar. Talið er að það sé vegna þess að landið hafi vax­andi áhyggjur af athöfnum Kín­verja í suð­ur­-Kína­hafi.


  8. Dætur blús­goð­sagn­ar­innar BB King telja að við­skipta­stjóri og per­sónu­legur aðstoð­ar­maður hans hafi byrlað honum eitur sem hafi flýtt fyrir dauða hans fyrir skemmstu.


  9. Grikk­land er enn í við­ræðum við alþjóð­lega lán­veit­endur sína um að fá um 7,2 millj­arða evra, 1.065 millj­arða króna, neyð­ar­lán afhent. Skoð­ana­kann­anir sýna að samn­inga­tækni Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra, er að tapa stuðn­ing almenn­ings.


  10. Flug­fé­lagið Mala­syia Air­lines er að fara í algjöra yfir­haln­ingu sem í felst meðal ann­ars að segja upp um einum þriðja hluta starfs­manna. Þetta ger­ist í kjöl­far tveggja flug­slysa hjá félag­inu á síð­asta árinu.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None