Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_51794677-1.jpg
Auglýsing

Business Insider hefur tekið saman sinn lista yfir tíu mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag. Ýmis­legt áhuga­vert er á list­anum í dag, þótt alltaf megi deila um mik­il­vægi ýmissa mála.



  1. AK flokk­ur­inn í Tyrk­landi missti þing­meiri­hluta sinn í gær eftir þrettán ára valda­tíð. Nú þarf flokk­ur­inn að reyna að mynda meiri­hluta með stjórn­ar­and­stöðu­flokki.


  2. Áætl­anir Grikkja njóta ekki stuðn­ings frá lán­ar­drottnum sín­um. Grikkir vilja end­ur­skipu­leggja skuldir rík­is­ins með því að end­ur­fjár­magna lán og fá afskriftir af þeim.


  3. Breska fyr­ir­tækið CBI hefur breytt hag­vaxt­ar­spám sínum fyrir Bret­land og varað við alvar­legum afleið­ingum af því ef Grikk­land hættir að vera aðild­ar­ríki að ESB. CBI spáir 2,4 pró­senta vexti á þessu ári og 2,5 pró­sentum á næsta ári.


  4. Sepp Blatt­er, for­seti FIFA, ræddi um tíu millj­óna dala greiðslu við Thabo Mbeki, sem þá var for­seti Suð­ur­-Afr­íku, í tölvu­pósti. FIFA hefur því þurft að við­ur­kenna að Blatter vissi um þessa greiðslu.


  5. Starfs­maður í Barclays-­banka, Justin Kwan, skrif­aði tölvu­póst til lær­linga í bank­anum sem bar tit­il­inn "vel­komin í frum­skóg­inn" og inni­hélt leið­bein­ingar sem hann kall­aði boð­orð. Þar var ýmis­legt niðr­andi að finna, og eftir að Wall Street Journal birti tölvu­póst­inn hefur verið greint frá því að hann hafi verið rek­inn úr bank­an­um.


  6. David Camer­on, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur gefið í skyn að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hans verði látnir hætta ef þeir styðja ekki áfram­hald­andi veru Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu. 60 þing­menn flokks­ins hafa til­kynnt að þeir muni berj­ast fyrir því að Bret­land yfir­gefi sam­band­ið.


  7. Lög­reglu­maður í Texas hefur verið settur í leyfi eftir að hann beindi byssu að óvopn­uðum ung­lingum í sund­laugap­artýi. Ung­ling­arnir voru blökku­menn, og mynd­band af atvik­inu var sett á net­ið.


  8. Til­kynnt hefur verið að Cait­lyn Jenner hljóti ESPY verð­launin sem banda­ríska íþrótta­stöðin ESPN veit­ir, en Cait­lyn hét áður Bruce og vann til gull­verð­launa á Ólymp­íu­leik­um. Mynd af manni sem missti tvo útlimi í Írak, og er sagður hafa tapað verð­laun­unum fyrir Cait­lyn fer nú um inter­netið eins og eldur í sinu, en ESPN segir mynd­ina ranga.


  9. Fjöl­miðlar fjalla nú með ólíkum hætti um súper­mód­elið Kate Moss og flug­ferð hennar frá Tyrk­landi til London. Daily Mail segir að henni hafi verið fylgt úr flug­inu og hún hand­tekin eftir að hafa verið með ólæti í vél­inni, en Tel­egraph segir að ekk­ert slíkt hafi átt sér stað.


  10. Suð­ur­-Kóreskir vís­inda­menn hafa hlotið tvær millj­ónir dala í verð­laun frá varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna eftir að vél­menni sem þeir smíð­uðu hafði betur gegn 22 öðrum vél­menn­um. Vél­mennin voru látin keppa í ýmsum þraut­um, eins og að keyra bíl.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None