Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_51931355-1.jpg
Auglýsing

Business Insider gerir í dag, eins og svo oft áður, lista yfir tíu mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag.



  1. Mats­fyr­ir­tækið S&P lækk­aði láns­hæf­is­mat Grikk­lands í gær vegna þess að enn hefur ekki samist um neyð­ar­lán til rík­is­ins. Sam­kvæmt mati S&P mun verða algjört greiðslu­fall hjá rík­inu innan árs ef ekki semst.


  2. Suð­ur­-Kórea hefur lækkað stýri­vexti niður í 1,5%, og hafa þeir aldrei verið lægri. Önd­un­ar­færa­sjúk­dóm­ur­inn MERS er að breið­ast út og far­aldur gæti haft skað­leg áhrif á efna­hags­líf­ið.


  3. Enn er leitað að morð­ingj­unum tveimur sem sluppu út úr fang­elsi í New York um síð­ustu helgi. Í gær var leitað í norð­ur­hluta New York ríkis og meðal ann­ars var vegum lokað vegna rann­sókn­ar­inn­ar, en menn­irnir hafa enn ekki fund­ist.


  4. Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bandið FIFA hefur ákveðið að fresta sam­keppni um hvaða ríki fær að halda heims­meist­ara­mótið í fót­bolta 2026, vegna spill­ing­ar­mála sem nú eru rann­sökuð og varða meðal ann­ars úthlutun á mót­unum 2018 og 2022.


  5. Barack Obama Banda­ríkja­for­seti hefur heim­ilað að hund­ruð her­manna til við­bótar verði sendir til Írak til að hjálpa íröskum her­deildum að ná aftur land­svæðum sem Íslamska ríkið hefur sölsað undir sig.


  6. Lög­reglu­maður í Texas, sem var settur í leyfi eftir að hann beindi byssu að óvopn­uð­um, þeldökkum ung­lingum í sund­laugarpartýi á dög­un­um, hefur tjáð sig um mál­ið. Hann seg­ist hafa verið stress­aður eftir að hafa sinnt útkalli vegna sjálfs­vígs skömmu áður.


  7. Þrír ráð­herrar í pólsku rík­is­stjórn­inni og for­seti þings­ins hafa sagt af sér eftir að leyni­legar upp­tökur af þeim voru gerðar opin­ber­ar. Á upp­tök­unum heyr­ast stjórn­mála­menn­irnir ræða ýmis­legt, allt frá per­sónu­legum samn­ingum yfir í við­kvæm utan­rík­is­mál.


  8. Kín­verskir hakk­arar sem komust inn í gagna­grunna banda­rískra yfir­valda gætu hafa kom­ist yfir per­sónu­upp­lýs­ingar um Kín­verja sem hafa tengsl við stjórn­völd í Banda­ríkj­un­um. Talið er að stjórn­völd í Kína gætu notað upp­lýs­ing­arnar til kúg­un­ar.


  9. Á tíu daga loft­lags­fundi á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna í Bonn, er verið að vinna að drögum að áætlun um að tak­marka hlýnun jarðar við tvær gráður umfram það sem hit­inn var fyrir iðn­bylt­ing­una.


  10. Frans páfi hefur sam­þykkt að skip­aður verði sér­stakur dóm­stóll í Vatík­an­inu til að dæma bisk­upa sem eru grun­aðir um að hafa hylmt yfir með barn­a­níð­ing­um. Þetta þykir stærsta skrefið hingað til í átt að því að draga menn til ábyrgðar vegna barn­a­níðs­mála í kaþ­ólsku kirkj­unni.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None