Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_52088774-1.jpg
Auglýsing

Business Insider tekur reglu­lega saman lista yfir merki­leg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­inum í dag. Eins og venju­lega kennir ýmissa grasa á list­an­um.



  1. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn vill ekki skuld­binda sig nýjum neyð­ar­lána­samn­ingi við Grikki.


  2. Búið er að finna brak og ferða­tösku á frönsku eyj­unni Réunion. Talið er næstum víst að brakið sé úr týndu flug­vél­inni MH370, sem hvarf spor­laust í fyrra, en nú er talið ólík­legt að ferða­taskan sé einnig úr vél­inni. Samt sem áður er þetta stærsta vís­bend­ingin um afdrif vél­ar­inn­ar.


  3.  Fjár­mála­eft­ir­litið í Hong Kong hefur sektað jap­anska bank­ann Nomura um 600 þús­und dali fyrir að hafa falið skugga­miðl­ara (e. rogue trader).


  4. Sam­sung gerði mis­tök með Galaxy S6 sím­ann sinn, en gögn kóreska fyr­ir­tæk­is­ins sýna að það gerði ekki ráð fyrir eft­ir­spurn­inni eftir Galaxy S6 Edge.


  5. Jer­emy Clarkson og félagar úr Top Gear hafa samið um gerð nýs sjón­varps­þáttar við Amazon. BBC ætlar að halda áfram að gera Top Gear þætti.


  6. Shell ætlar að reka 6.500 starfs­menn og selja eignir fyrir 20 millj­arða dala, en nýjasta árs­fjórð­ungs­upp­gjör olíu­fyr­ir­tæk­is­ins sýnir að lækk­andi olíu­verð hefur haft mjög slæm áhrif á fjár­mál­in.


  7. Hag­vöxtur á Spáni var eitt pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi, og miðað við sama árs­fjórð­ung í fyrra var vöxt­ur­inn 3,1 pró­sent. Þetta eru bestu töl­urnar síðan kreppan hófst árið 2008.


  8. Fólk í Zimbabwe skilur ekki hvers vegna Vest­ur­landa­búar eru svona miður sín yfir dauða ljóns­ins Cecil, en stjórn­völd hafa farið fram á að tann­lækn­ir­inn banda­ríski sem drap ljónið verði fram­seldur og lát­inn svara til saka.


  9. Tyrkir eru að leika „hættu­legan leik“ og gætu verið að stofna til stríðs á tveimur víg­stöð­um, að mati sér­fræð­inga.


  10. Barack Obama Banda­ríkja­for­seti hefur fyr­ir­skipað verk­fræð­ingum að búa til hrað­virk­ustu tölvu heims. Hann vill að hún verði þrjá­tíu sinnum hrað­ari en hröð­ustu tölv­urnar eru í dag.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None