Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

h_52120652-1.jpg
Auglýsing

Business Insider tekur iðu­lega saman lista yfir­ ­tíu mik­il­væg­ustu hlut­ina sem eru að ger­ast í heim­in­um, að mati fjöl­mið­ils­ins. Sem fyrr eru frétt­irnar af ýmsum toga.



  1. Leit­ar­flug­vél hefur stað­sett brak indónesískrar far­þega­vélar sem hvarf af rat­sjám um helg­ina. Fjöru­tíu og fjórir far­þegar voru um borð í vél­inni en eng­inn er tal­inn hafa lifað af.


  2. Sam­dráttur varð í lands­fram­leiðslu Japan um 0,4% á síð­asta árs­fjórð­ungi í fyrsta sinn síðan á þriðja árs­fjórð­ungi síð­asta árs.


  3. Banda­ríkin og banda­menn þeirra hafa gert 22 loft­árásir sem bein­ast að Íslamska rík­inu á und­an­förnum sól­ar­hring. Árás­irnar voru gerðar í Sýr­landi og Írak.


  4. Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að tvær litlar flug­vélar rák­ust saman í lofti í Banda­ríkj­un­um, við landa­mærin við Mexíkó, í gær.


  5. Búið er að sam­þykkja ströng hryðju­verka­lög í Egypta­landi, en sam­kvæmt þeim mun hver sá sem er fund­inn sekur um að koma á lagg­irnar eða leiða hryðju­verka­sam­tök eiga dauða­refs­ingu yfir höfði sér.


  6. 48 millj­ónir kjúklinga og kalkúna hafa drep­ist í fuglaflensu­far­aldri í Banda­ríkj­un­um. Þetta er versti far­aldur flensunnar frá upp­hafi, og búist er við að verð á eggjum muni hækka veru­lega vegna þessa.


  7. Þjóð­ar­dag­blað stjórn­valda í Kína segir að ekki verið með neinum hætti reynt að fela ástæður þess að miklar spreng­ingar urðu í verk­smiðju í Tianjin í síð­ustu viku. Að minnsta kosti 114 manns lét­ust í spreng­ing­un­um. Mikið hefur verið rætt um mögu­leg tengsl eig­enda verk­smiðj­unnar við Komm­ún­ista­flokk­inn.


  8. Gengi kín­verska yuan-s­ins gagn­vart Banda­ríkja­dollar hefur styrkst um 0,01% eftir að hafa veikst þrjá daga í röð fyrir helgi.


  9. Edina Hayes var stungin til bana á götu úti í New York um helg­ina. Hún var barna­barn leik­ar­ans Morgan Freeman og hefur málið vakið mikla athygli. Þrí­tugur karl­maður hefur verið hand­tek­inn vegna morðs­ins.


  10. Andy Murray bar sigur úr býtum á Montr­eal meist­ara­mót­inu í tennis um helg­ina.


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None