„Tók snúning“ og græddi 10 milljónir á Íslandsbanka á einni nóttu

Páll Magnússon segir frá kunningja sínum sem var boðið að „taka snöggan snúning á Íslandsbanka“ 22. mars síðastliðinn. Hann seldi hlutinn aftur morguninn eftir og græddi 10 milljónir.

Færsla Páls hafði ekki staðið í klukkustund þegar hún hafði vakið mikla athygli og hörð viðbörgð.
Færsla Páls hafði ekki staðið í klukkustund þegar hún hafði vakið mikla athygli og hörð viðbörgð.
Auglýsing

„Að kvöldi 22. mars var hringt í vel stæðan kunn­ingja minn og spurt hvort hann vildi ekki taka snöggan snún­ing á Íslands­banka. Hann gæti lík­lega orðið 10 millj­ónum rík­ari þegar hann vakn­aði í fyrra­mál­ið.“

Svona hefst færsla Páls Magn­ús­son­ar, fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, titluð Sala af banka­sölu, þar sem hann segir frá kunn­ingja sínum sem keypti í Íslands­banka í lok­uðu útboði 22. mars síð­ast­lið­inn.

­Sam­kvæmt Páli var sá sem hringdi vinur kunn­ingja hans, og var sá starfs­maður hjá einum af sölu­að­ilum bréf­anna. Til­boðið þótti kunn­ingja Páls stór­snið­ugt og keypti um milljón hluti á 117 krón­ur, 5 króna afslætti frá síð­asta skráða mark­aðs­gengi, sem hafði verið 122 krón­ur. „Við fyrsta hana­gal morg­un­inn eftir seldi svo kunn­ingi minn bréfin á geng­inu 127. Lof­orð vinar hans frá því kvöldið áður stóðst nán­ast upp á krónu: Kunn­ingi minn græddi um 10 millj­ónir á þessum tveimur sím­töl­um; tæp­lega 1,5 millj­ónir á klukku­tíma á meðan hann svaf,“ skrifar Páll.

Auglýsing
Um svipað leyti og þessi kunn­ingi hans hafi fengið til­boð um að kaupa á 117 krónur hafi til­boði frá stórum líf­eyr­is­sjóði, sem vildi kaupa fyrir meira en 10 millj­arða króna á geng­inu 122 krón­ur, sem­sagt án afslátt­ar, verið hafn­að.

„Svo komu menn hver um annan þver­an; fjár­mála­ráð­herrann, Banka­sýslu­for­ingj­arnir og jafn­vel nokkrir þing­menn og útskýrðu fyrir okkur ein­feldn­ing­unum hvað þetta hefði verið gríð­ar­lega vel heppnað útboð. Einmitt.“

Færsla Páls hafði ekki staðið í klukku­stund þegar hún hafði vakið mikla athygli og hörð við­börgð. Meðal þeirra sem skrifar athuga­semd við færsl­una Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, sem þakkar Páli fyrir að deila sög­unni og segir það mik­il­vægt. Þá hefur Sig­mar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisn­ar, deilt færsl­unni og látið þessi orð fylgja: „Ætla menn svo áfram að halda því fram að það eigi ekki að skipa rann­sókn­ar­nefnd Alþingis til að kryfja þessa banka­sölu? Eigum við áfram að taka það gott og gilt að þetta verði ekki rann­sakað af þeim sem mestar rann­sókn­ar­heim­ildir hef­ur? Hversu mikið þarf að koma í ljós til þess að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir átti sig á að það þarf að velta við hverjum steini, en ekki bara sumum stein­um."

Saga af banka­sölu. Að kvöldi 22. mars var hringt í vel stæðan kunn­ingja minn og spurt hvort hann vildi ekki taka snögg­an...

Posted by Páll Magn­ús­son on Sat­ur­day, April 9, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent