Tölvuleikjaspilarar sendir í lyfjapróf

h_02065965-1.jpg
Auglýsing

Ein stærsta tölvu­leikja­deild heims, the Elect­ronic Sports League (ESL), hefur ákveðið að tölvu­leikja­spil­arar muni fram­vegis gang­ast undir lyfja­próf fyrir þátt­töku í móti. ESL hyggst hefja sýna­tök­una á fyr­ir­hug­uðu tölvu­leikja­móti í ágúst, en deildin ákvað að herða keppn­is­reglur sínar eftir að þekktir tölvu­leikja­spil­arar gort­uðu sig af því nýverið að hafa neytt lyf­seð­il­skyldra lyfja við athygl­is­bresti og ofvirkni  á tölvu­leikja­móti til að skerpa á ein­beit­ing­unni í skot­leiknum Counter Stri­ke. Frétta­mið­ill­inn New York Times greinir frá mál­inu.

ESL hefur samið við tvö þekkt ­fyr­ir­tæki um útfærslu og fram­kvæmd lyfja­prófanna, sem og gerð lyfja­reglna fyrir tölvu­leikja­mót á vegum deild­ar­inn­ar. Annað fyr­ir­tækið hefur komið að lyfja­prófum fyrir hjól­reiða­mót, Ólymp­íu­leik­anna og aðra stærri íþrótta­við­burði.

Hert­ari reglur ESL gefa sterk­lega til kynna hversu mikil alvara er hlaupin í tölvu­leikja­spil­un, en verð­laun fyrir efstu sæti á tölvu­leikja­mótum geta hlaupið á millj­ónum króna. Á þessu ári er gert ráð fyrir að tekjur af tölvu­leikja­keppnum fari upp fyrir 250 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Verð­launafé á árinu 2015 er áætlað yfir 70 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða hátt í fimmtán millj­arða íslenskra króna.

Auglýsing

„Við viljum að allir sitji við sama borð og stuðla að heið­ar­legri keppn­i,“ hefur the New York Post eftir tals­manni ESL. Þá ber að geta þess að tölvu­leikja­móts­hald­ar­inn hefur bannað notkun lyfja í keppnum hngað til, en í móts­regl­unum voru hvorki til­greind lyfin sem ekki máti neyta, né uppi virkt eft­ir­lit með lyfja­notkun kepp­enda.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None