Tvíhöfði snýr aftur í Hlaðvarpi Kjarnans

15518796196-8c29ba46cb-z.jpg
Auglýsing

Tví­höfði, í umsjón Jóns Gnarr og Sig­ur­jóns Kjart­ans­son­ar, mun hefja göngu sína í hlað­varpi Kjarn­ans mið­viku­dag­inn 5. nóv­em­ber næst­kom­andi. Sam­komu­lag þess efnis var hand­salað nýver­ið. Um verður að ræða viku­lega hlað­varps­þætti sem hægt verður að nálg­ast á vef­síðu Kjarn­ans eða með því að ger­ast áskrif­andi í gegnum snjall­tæki. Það er gert með því að leita að "Kjarn­inn" í öllum hlað­varpsöpp­um. Nán­ari upp­lýs­ingar verður hægt að nálg­ast á www.kjarn­inn.is á sama tíma og fyrsti þátt­ur­inn fer í loft­ið.

"­Þjóðin hefur sett Tví­höfða í fyrsta sæti. Nú er komið að þjóð­inni að sitja framí!"

Þekktir dag­skrár­liðir á borð við „Smá­sál­ina“ sem hlust­endur Tví­höfða kann­ast við verða fyr­ir­ferða­miklir í þátt­un­um. Auk þess verður boðið upp á nýj­ungar sem hafa verið að bræð­ast í höfði Tví­höfða frá því að tvíeykið var síð­ast með reglu­lega útvarps­þætti.

Auglýsing

Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr eru Tvíhöfði. Sig­ur­jón Kjart­ans­son og Jón Gnarr eru Tví­höfð­i.

Tví­höfði fyrir máls­met­andi menn og kell­ingar útí bæ



Jón Gnarr, annar helm­ingur Tví­höfða, segir að það rík­i ­mikil eft­ir­vænt­ing og barns­leg gleði hjá honum og Sig­ur­jóni vegna þess­arra tíma­móta. „Tví­höfði hefur öðl­ast sess með þjóð­inni. Þjóðin hefur sett Tví­höfða í fyrsta sæti. Nú er komið að þjóð­inni að sitja framí! Marg­miðl­un­ar­þrek­virkið Tví­höfði er þjóðin og fyrir þjóð­ina. Við ætlum að hlusta á fólkið í land­inu. Okkur er alveg sama hvort þú ert hip­ster í Reykja­vík eða ein­hver lúði út á landi. Fyrir Tví­höfða eru allir jafnir ef þeir eru Íslend­ing­ar. Tví­höfði spyr ekki hvort þú sért ein­hver máls­met­andi maður eða bara ein­hver kell­ing útí bæ. Ef þú hefur eitt­hvað að segja þá er Tví­höfði þín rödd.“

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, er að vonum ákafa­lega ánægður með að Tví­höfði hafi valið að snúa aft­ur, í sam­starfi við Kjarn­ann. „Kjarn­inn ætlar að vera leið­andi í hlað­varpi á Íslandi. Við viljum bjóða upp á það sem er best. Og það er ekk­ert betra en Tví­höfð­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None