Um 43 prósent hlutdeildarlána veitt á höfuðborgarsvæðinu

Inn í reglugerð um hlutdeildarlán er skrifuð sérstök trygging fyrir því að hið minnsta 20 prósent lánanna þurfi að vera veitt utan höfuðborgarsvæðisins. Það hefur heldur betur ekki þurft að grípa til þeirrar forgangsaðgerðar til þessa.

Alls hafa 126 af 292 veittum hlutdeildarlánum verið á höfuðborgarsvæðinu.
Alls hafa 126 af 292 veittum hlutdeildarlánum verið á höfuðborgarsvæðinu.
Auglýsing

Á því ári sem liðið er frá því að byrjað var að veita hlut­deild­ar­lán, vaxta­laus við­bót­ar­lán úr rík­is­sjóði sem ætluð eru tekju- og eigna­litlum fyrstu kaup­end­um, hafa 43 pró­sent lán­anna verið veitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en 57 pró­sent utan þess. Þetta kemur fram í svari frá Hús­næð­is- og manns­virkja­stofnun við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Þegar hlut­deild­ar­lánin voru sam­þykkt á þingi haustið 2020 var búist við því að lánin yrðu umtals­vert fleiri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en reyndin hefur verið til þessa, en inn í reglu­gerð um hlut­deild­ar­lánin voru skrif­aðar sér­stakar trygg­ingar fyrir því að minnsta kosti 20 pró­sent af þess­ari nýju teg­und lána yrðu veitt til kaupa á íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Það má þó ef til vill telj­ast eðli­legt að lánað hafi verið fyrir fleiri íbúðum utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til þessa, enda eru þau skil­yrði skrifuð inn í reglu­gerð um lánin að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þurfi íbúð­irnar að vera nýbyggð­ar, á meðan að utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er hægt að fá und­an­þágu og fá lánað fyrir eldri íbúð sem hlotið hefur gagn­gerar end­ur­bæt­ur.

Auglýsing

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er fast­eigna­verð þó einnig það hæsta á land­inu og flestir ein­stak­lingar sem eru að reyna að kom­ast inn á hús­næð­is­mark­að­inn. Á það hefur verið bent á und­an­förnu að í dag séu afar fáar íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem falli innan þess verð­bils sem gerir íbúðir „hag­kvæmar“ í skiln­ingi reglu­gerðar um hludeild­ar­lán.

Alls hafa 126 hlut­deild­ar­lán verið veitt til íbúða­kaupa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar af 80 í Reykja­vík, 18 í Mos­fells­bæ, 11 í Hafn­ar­firði, 9 í Garðabæ og 8 í Kópa­vogi. Afgang­ur­inn af lán­unum hefur dreifst um allt land, en lánin eru 292 í heild­ina sam­kvæmt töl­unum sem Kjarn­inn fékk frá HMS.

Fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið hafa flest lán verið veitt í Reykja­nes­bæ, eða alls 63 tals­ins. Á Akur­eyri hefur verið lánað fyrir kaupum á 45 íbúðum og í Árborg eru lánin 16 tals­ins til þessa. Lánað hefur verið til kaupa á 10 íbúðum í Hvera­gerði, 9 lán hafa verið veitt í Suð­ur­nesjabæ og 8 á Akra­nesi.

Í öðrum sveit­ar­fé­lögum hring­inn í kringum landið eru lánin 1-2 tals­ins. Reyndar væri rétt­ara að tala um hálf­hring um landi í þessu sam­hengi, því ekk­ert hlut­deild­ar­lán hefur enn verið veitt til kaupa á íbúðum í sveit­ar­fé­lögum á Aust­ur- eða Suð­aust­ur­land­i.

Flest þau lán sem hafa verið veitt utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til þessa, í fyrstu fimm úthlut­unum árs­ins 2021 af þeim sex sem áætlað er að klárist á árinu, hafa verið til kaupa á íbúðum á skil­greindum vaxt­ar­svæðum utan borg­ar­svæð­is­ins. Þar, n.t.t. á Akra­nesi, Akur­eyri, Grinda­vík, Hvera­gerði, Reykja­nes­bæ, Árborg og Vogum er lánað fyrir ögn dýr­ari íbúðum en í öðrum sveit­ar­fé­lögum utan Stór-Reykja­vík­ur, þar sem svo aftur er lánað fyrir enn dýr­ari íbúð­um.

Auglýsing

Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun segir í svari til Kjarn­ans að um þessar mundir sé verið að ljúka sjöttu og síð­ustu úthlutun árs­ins og að frek­ari töl­fræði um stöðu úthlut­ana muni verða aðgengi­leg hjá stofn­un­inni eftir þá úthlut­un.

Eins og Kjarn­inn sagði frá á dög­unum var áður en að þeirri úthlutun kom búið að úthluta innan við 2,5 millj­örðum króna frá því að þetta nýja úrræði fór af stað, en þegar lánin voru kynnt til sög­unnar var gert ráð fyrir því að um fjórum millj­örðum yrði úthlutað árlega, alls 40 millj­örðum á tíu ára tíma­bili. Í fjár­laga­frum­varp­inu var enn gert ráð fyrir því í áætl­unum stjórn­valda að lánin upp í 3,6 millj­arða króna á þessu ári, að lok­inni síð­ustu úthlut­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent