Um sex af hverjum tíu Íslendingum vilja takmarka setu forseta

10054184655-c3865a384f-z.jpg
Auglýsing

Tæp­lega sex af hverjum tíu Íslend­ingum vilja tak­marka setu á for­seta­stóli við ákveð­inn fjölda kjör­tíma­bila. Tæp­lega helm­ingur vill að tak­markið verði sett við tvö kjör­tíma­bil en 17 pró­sent vilja að áfram verði engin mörk. Þetta kemur fram í könnun sem Mask­ína gerði fyrir Morg­un­út­gáf­una og sagt var frá í morg­un.

Sam­kvæmt henni vilja rúm 20 pró­sent að þrjú kjör­tíma­bil sé hámarks­seta á for­seta­stóli, en hvert kjör­tíma­bil er fjögur ár. Um fjórð­ungur vill að for­seti geti setið tvö kjör­tíma­bil og því er tæp­lega helm­ingur aðspurðra þeirrar skoð­unar að for­seti sé ekki lengur í emb­ætti en þrjú kjör­tíma­bíl eða færri. Konur og háskóla­mennt­aðir eru lik­legri til að styðja tak­mörkun á fjölda kjör­tíma­bila. Fleiri kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru hins vegar and­vígi slíku kerfi en fylgj­andi því. Meiri­hluti kjós­enda Pírata, Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar eru fylgj­andi tak­mörk­un­um.

Tæp 45 pró­sent þeirra sem eru fylgj­andi því að tak­mörk séu sett á setu á for­seta­stóli eru þeirrar skoð­unar að ein og sama mann­eskjan sitji í emb­ætti í tvö kjör­tíma­bil. Tæp 37 pró­sent vilja að hámarkið verði sett við þrjú kjör­tíma­bil. Því telja yfir 80 pró­sent þeirra sem spurðir voru álits í könn­un­inni að lengd setu for­seta verði sett mörk rétt að for­seti sitji í þrjú kjör­tíma­bil eða færri. Ein­ungis um tíu pró­sent aðspurðra höfðu þá skoðun að for­seti ætti að sitja fjögur kjör­tíma­bil.

Auglýsing

Ólafur Ragnar Gríms­son, sitj­andi for­seti Íslands, hefur setið á for­seta­stóli frá árinu 1996. Hann er því að ljúka sínu fimmta kjör­tíma­bili. Ólafur Ragnar hefur enn ekki gefið út hvort hann muni bjóða sig fram á ný í for­seta­kosn­ing­unum sum­arið 2016 en hefur sagt að hann muni til­kynna um það í næsta ára­móta­ávarpi sínu.

Könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 24. júlí til 13. ágúst og voru svar­endur 751.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None