Um tíu mál gegn Íslandspósti til skoðunar hjá Samkeppniseftirliti

L.ttu_p.stinn_koma_.v._til_skila_.1916399980.jpg
Auglýsing

Í kringum tíu mál eru í skoðun hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu þar sem fyr­ir­tæki á póst- og flutn­inga­mark­aði telja að Íslands­póst­ur, sem er í eigu rík­is­ins, mis­noti aðstöðu sína til að skapa óeðli­legt sam­keppn­is­for­skot gagn­vart keppi­nautum sín­um. Íslands­póstur starfar í skjóli einka­leyfis og þeirrar set mark­aðs­stöðu sem sem fyr­ir­tækið hefur skapað sér í gegnum tíð­ina. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Frum­kvæð­is­rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á atferli Íslands­póst hófst fyrir meira en sex árum síð­an, á árinu 2008. Síðan þá hafa enn fleiri ný mál gegn fyr­ir­tæk­inu bæst við. Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, segir að þessar tafir sem orðið hafa á með­ferð mál­anna séu vegna mik­ils álags á stofn­un­ina sem hefur átt sér stað sam­fara lækkun á fjár­heim­ildum sem renna til henn­ar.

Hann segir að eft­ir­litið hafi átt í við­ræðum við Íslands­póst frá árinu 2013 til að leiða málið til lykta, en það liggi ekki fyrir á þessu stígi hvert við­ræð­urnar leiða. Við­ræð­urnar séu enn í gangi og Páll von­ast til að ljúka flestum mál­anna á næst­unni. Páll segir að það sé ekki hægt að draga sjálf­krafa þá ályktun að Íslands­póstur hafi við­ur­kennt sekt útúr því að málið sé í sátt­ar­með­ferð.

Auglýsing

Kvört­uðu yfir því að fólk sendi færri bréf



Þessar fréttir koma nokkrum dögum eftir að Íslands­póstur sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem sagði að  ­þróun bréfa­magns hér á landi, hafi nú veru­lega nei­kvæð áhrif á afkomu bréfa­dreif­ingar fyr­ir­tæk­is­ins og að gera megi ráð fyrir að „tekjur af bréfa­dreif­ingu hefðu verið um 1.800 millj­ónum króna á árinu 2014 ef verð hefði breyst í sam­ræmi við vísi­tölu neyslu­verðs og magn hefði hald­ist óbreytt frá árinu 2007.“

Til­kynn­ing­in, sem send var til fjöl­miðla þann 19. febr­úar síð­ast­lið­inn, var með fyr­ir­sögn um að fækkun bréfa, sem sagt minni notkun fólks á bréfa­send­inum til sam­skipta, hafi haft „al­var­leg áhrif á afkomu Íslands­póst­s“.

­Gera má ráð fyrir að tækni­þróun eigi þarna mik­inn hlut að máli, enda bréfa­send­ingar ekki eins og mikið not­aðar til sam­skipta og upp­lýs­inga­skipta nú eins og á árum áður, þegar inter­netið hafði ekki umbylt samskiptamöguleikum.

Gera má ráð fyrir að tækni­þróun eigi þarna mik­inn hlut að máli, enda bréfa­send­ingar ekki eins og mikið not­aðar til sam­skipta og upp­lýs­inga­skipta nú eins og á árum áður, þegar inter­netið hafði ekki umbylt sam­skipta­mögu­leik­um.

„Spá Íslands­pósts gerir ráð fyrir enn frek­ari magn­minnkun á næstu árum en gert er ráð fyrir að hún geti orðið allt að 30% til árs­loka 2019,“ segir í til­kynn­ingu Íslands­pósts.

Í til­kynn­ing­unni kvart­aði Íslands­póstur enn fremur undan því að kvaðir um póst­dreif­ingu séu enn þær sömu og áður, og dreifi­kerfið haldi áfram að stækka, með fleiri póst­lúg­um.

„Burð­ar­gjöld eru lægst á Íslandi sam­an­borið við Norð­ur­lönd­in, Bret­land og Þýska­land sam­kvæmt nýút­kominni skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar í Sví­þjóð en á sama tíma eru hlut­falls­lega fæst bréf á íbúa hér á landi. Íslands­póstur hefur um nokk­urt skeið gert til­lögur til stjórn­valda um breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi bréfa­dreif­ingar til þess að mæta auknum kostn­aði og minnk­andi tekjum af bréf­um, en ekki er búið að fall­ast á þær breyt­ingar enn sem komið er.“

Net­verslun styrk­ist hratt



Eitt svið þar sem rekstur Íslands­pósts hefur verið að styrkj­ast á und­an­förnum árum er í afgreiðslu á póst­verslun með vöru sem íslenskir neyt­endur panta í gegnum inter­net­ið, en Íslands­póstur rekur fjöl­margar póst­af­greiðslu­stöðvar víða um land. Í Frétta­blað­inu í dag er til að mynda sagt frá því að aukn­ing á póst­verslun frá Kína á milli áranna 2013 og 2014 hafi verið 137 pró­sent sam­kvæmt sam­an­tekt Hag­stofu Íslands.

Að baki stærstum hluta póst­versl­un­ar­innar frá Kína er net­versl­unin Ali­ex­press, sem til­heyrir Ali­baba sam­stæð­unni. Ljóst er að frí­versl­un­ar­sam­ingur Íslands og Kína, sem tók gildi 1. júlí í fyrra, hefur skipt sköpum fyrir aukn­ingi í þess­ari versl­un. Við gild­is­töku hans ­féllu niður tollar á 96 pró­sentum vara sem frá Kína koma.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None