Umfjöllun um blóðmerahald í útlöndum valdi íslenskri ferðaþjónustu skaða

Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að einungis 7.700 ferðamenn þurfi að ákveða að koma ekki til Íslands til þess að efnahagslegur skaði af því fyrir þjóðarbúið verði meiri en ávinningurinn af blóðtöku úr fylfullum merum.

Hestur
Auglýsing

Bjarn­heiður Halls­dótt­ir, for­maður Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar, segir að nýleg umfjöllun um blóð­mera­hald á Íslandi á mörgum helstu mark­aðs­svæðum íslenskrar ferða­þjón­ustu hafi leitt til þess að sím­tölum og fyr­ir­spurnum hafi „rignt yfir ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki bæði hér heima og erlend­is“ og valdið „trufl­unum í eft­ir­spurn“ eftir íslenskri ferða­þjón­ustu.

Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Bjarn­heiður birtir á Vísi í dag, en þar veltir hún því upp hvort verið sé að fórna meiri hags­munum fyrir minni með því að leyfa blóð­töku úr fyl­fullum merum á Íslandi með til­heyr­andi hættu á skað­legri umfjöllun erlend­is.

„Út­flutn­ings­verð­mæti á blóði úr fyl­fullum hryssum eru áætluð um tveir millj­arðar króna á ári. Til sam­an­burðar eru útflutn­ings­tekjur af 7700 ferða­mönnum sem sækja Ísland heim um tveir millj­arðar króna. Þó að umfjöllun um blóð­mera­hald fæli aðeins um 7700 ferða­menn frá því að koma til lands­ins þá eru þessir tveir millj­arðar úflutn­ings­tekna tap­að­ir,“ segir í grein Bjarn­heið­ar.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Mynd: SAF

Hún bætir því við að reynslan af áhrifum hval­veiða á ímynd Íslands og ferða­þjón­ustu sýni að það sé „fylli­lega raun­hæfur fjöldi“ og ef áhrifin verði enn meiri en það, sem sé „mjög lík­leg­t“, verði blóð­mera­hald „farið að valda beinum efna­hags­legum skaða“.

Bjarn­heiður spyr hvort blóð­mera­hald og útflutn­ingur á blóði úr fyl­fullum merum, sem að end­ingu nýt­ist við fram­leiðslu horm­óna til svína­eld­is, sé „góður „bis­ness“ fyrir Ísland í heild­ar­sam­heng­in­u“.

Megi reikna með nei­kvæðum áhrifum á hesta­hag­kerfið

Í grein sinni nefnir hún einnig að reikna megi með því að umfjöllun um blóð­mera­hald á Íslandi í erlendum fjöl­miðlum í kjöl­far þess að evr­ópsk dýra­vernd­un­ar­sam­tök komu til lands­ins og tóku í laumi upp mynd­skeið af blóð­töku fyl­fullra mera hafi skað­leg áhrif á „hesta­hag­kerf­ið“ á Íslandi.

Auglýsing

Bjarn­heiður bendir á að á síð­asta ári hafi um 3.300 íslensk hross verið seld úr landi fyrir and­virði um 2,2 millj­arða króna og að í því sam­hengi skipti ímynd íslenska hests­ins miklu.

Umdeilt mál

Blóð­mera­hald sem búgrein hefur verið tölu­vert í umræð­unni á und­an­förnum mán­uð­um, en í nóv­em­ber birtu dýra­vernd­un­­ar­­sam­tökin Animal Welfare Founda­tion í Þýska­landi og Tierschutz­bund Zürich í Sviss tutt­ugu mín­útna mynd á YouTube sem sýnir slá­andi með­­­ferð íslenskra hryssa við blóð­­­töku.

Þetta hefur vakið upp miklar umræður og kalla sumir eftir því að búgreinin verði alfarið bönnuð hið snarasta og frum­varp þess efnis er til með­ferðar á þingi. Aðrir segja hins vegar að mynd­skeiðið frá evr­ópsku dýra­vernd­ar­sam­tök­unum hafi verið áróð­urs­mynd­band sett fram af öfga­hópum og myndefnið end­ur­spegli alls ekki hvernig er almennt staðið að blóð­töku úr merum hér­lend­is.

Mat­væla­stofnun rann­sak­aði meint alvar­leg brot og vís­aði þeim svo áfram til lög­reglu, sem fer nú með mál­in. Í upp­hafi árs skip­aði Svan­dís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra svo þriggja manna hóp sem á að skoða starf­sem­ina og reglu­verk og eft­ir­lit í kringum búgrein­ina.

„Ráð­herra hefur falið hópnum að funda með hag­að­ilum auk þess sem almenn­ingi mun gef­­ast kostur á að tjá sig um störf og til­­lögur hóps­ins á Sam­ráðs­­gátt stjórn­­­valda þegar þær liggja fyr­­ir. Starfs­hóp­­ur­inn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráð­herra til­­lögum sínum fyrir 1. jún­­í,“ ­sagði í til­­kynn­ingu atvinn­u­­vega- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyt­is­ins frá 3. jan­ú­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent