Unga fólkið þarf að funda með styrkjendum flokksins

Bjarni
Auglýsing
Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ályktaði á lands­fundi sínum um liðna helgi, að hann vildi kanna með upp­töku ann­arrar myntar, sem væri „gjald­geng í alþjóða­við­skipt­u­m“. Mál­efna­legar umræður voru um málið á fund­in­um, en þær bættu þó engu við fyrri atriði sem komið hafa fram um mál­ið. Það sem var merki­legt við umræð­urnar var fyrst og fremst það, að unga fólkið í flokknum kall­aði eftir því að önnur mynt en krónan yrði tekin upp, þar sem óstöð­ug­leiki í efna­hags­líf­inu ætti upp­tök sín í sjálf­stæðri pen­inga­stefnu með krón­una í okkar litla land­i. 



Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur til þessa algjör­lega skilað auðu í gjald­miðla­mál­um, og honum hefur tek­ist að drepa niður alla krafta innan flokks­ins sem vilja skipta um mynt. Nið­ur­staðan er alltaf hávaxtakróna sem hægt er að fella fyrir útgerð­ina, ef í harð­bakk­ann slær hjá henni.



Lands­menn muna samt vel eftir heil­síðu­aug­lýs­ing­unum í blöð­unum árið 2009, með Bjarna Bene­dikts­syni í for­grunni, þar sem hann tal­aði fyrir því að taka upp evru í sam­starfi við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn. Umræða um að taka upp Kana­da­dal náði líka nokkrum hæðum um tíma, en hún er ekk­ert rædd leng­ur. Greinar Bjarna og Ill­uga Gunn­ars­son­ar, þar sem þeir ræddu um mögu­leik­ann á því að taka upp evru, reynd­ust ekk­ert annað en froðu­snakk um ekk­ert. Vilj­inn til þess að breyta reynd­ist eng­inn.



Hafta- og hávaxtakróna er það sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur hingað til vilj­að. Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist vera með efa­semdir um krón­una. Algjör­lega óljóst er samt hvað hann vill gera ann­að, og lausnir eru hvergi sjá­an­leg­ar.



Brynjar og félagar á Alþingi hafa not­ast við pen­inga­mála­stefnu, sem er lög­bund­in, þar sem grund­vall­ar­at­riðið er mið­stýr­ing rík­is­ins á fjár­magns­hreyf­ingum með höft­um. Allt er þetta í boði Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem beitti sér fyrir setn­ingu haft­anna eftir alls­herj­ar­hrun banka­kerf­is­ins og krón­unn­ar, og hefur lengst af ára­tuga­langri hafta­stefnu verið við stjórn­völ­inn í efna­hags­málum lands­ins. 



Spurn­ingin er núna, hvort unga fólkið sem kvartar undan krón­unni á lands­fundi, nái eyrum full­trúa flokks­ins á Alþingi. Sagan segir okk­ur, að það séu hverf­andi líkur á því. Hugs­an­lega ætti unga fólkið frekar að fara í funda­her­ferð með þeim sem styrkja flokk­inn með fjár­fram­lög­um, og halda þannig flokks­starf­inu gang­andi, og reyna að sann­færa þá um að breyta um stefnu. Stærstu styrkj­end­urnir eru útgerð­ar­fyr­ir­tæk­in.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None