Ungverjar lýsa yfir neyðarástandi og geta beitt hernum gegn flóttamönnum

h_52209916.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd í Ung­verja­landi lýstu í dag yfir neyð­ar­á­standi í tveimur sýslum við landa­mæri Serbíu í suð­ur­hluta lands­ins. Með því að lýsa yfir neyð­ar­á­standi er her­liði lands­ins heim­ilað að aðstoða lög­regl­una við landamæra­eft­ir­lit og aðrar skyldur sem tengj­ast straumi flótta­manna til lands­ins.

Mikið hefur gengið á við landa­mæri Ung­verja­lands og ástandið þar eld­fimt. Í gær tóku í gildi strang­ari lög um flótta­fólk sem refsi­væða það að fara ólög­lega inn í landið og heim­ila þannig lög­regl­unni að hand­taka hvern þann sem reynir að kom­ast yfir girð­ing­una sem liggur við landa­mæri Serbíu og Ung­verja­lands.

Að sögn ung­verskra stjórn­valda komu yfir níu þús­und flótta­menn inn í landið í gær, á mánu­dag, og er það nýtt met. Á mið­nætti tóku í gildi hert­ari lög og landa­mær­unum var lok­að.

Auglýsing

Gyorgy Bakondi, sér­stakur varn­ar­mála­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, til­kynnti í dag að sér­stakt svæði hafi verið skil­grein­t ­fyrir flótta­menn við landa­mær­in. Þeir sem koma þangað og óski eftir hæli verði sendir til baka til Serbíu. Skil­greinda svæðið er laga­lega ekki Ung­verja­land, sagði Bakondi við blaða­menn í dag, sam­kvæmt frá­sögn The Guar­dian.

Bakondi sagði að fjöldi Sýr­lend­inga sem hafi komið inn í Ung­verja­land á síð­ustu þremur mán­uðum sé 66.896. Hann benti á að flótta­menn frá 74 öðrum löndum hafi komið til lands­ins á sama tíma­bili, þar á meðal 32.900 frá Afganistan og 3.630 frá Írak. Alls hafa 171 þús­und manns óskað eftir hæli á síð­ustu þremur mán­uð­um. Aðeins 300 hefur verið veitt hæli á sama tíma og 4.000 hefur verið synjað og send­ir úr landi. Umsókn­ar­ferli 65 þús­und ann­arra hefur verið hætt vegna þess að umsækj­endur „hurfu“, sagði Bakondi blaða­mönn­um. Um 95 þús­und umsóknir eru nú til skoð­un­ar.

Engin nið­ur­staða fékkst á ráð­herra­fundi Evr­ópu­sam­bands­landa og Schen­gen-­ríkja um mál­efni flótta­manna í gær. Til­laga fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins um að 120 þús­und flótta­mönn­um, sem nú halda til í Grikk­landi, Ítalíu og Ung­verja­landi, verði dreift um álf­una með bindn­andi kvót­um, náði ekki fram að ganga. Ákveðið hefur verið að 40 þús­und flótta­menn flytj­ist frá Ítalíu og Grikk­landi en að öðru leyti standa við­ræður ríkj­anna óleyst­ar.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None