Unnur Brá gagnrýnir Davíð Oddsson harðlega

14402273491_8671fcbc8c_b.jpg
Auglýsing

Unnur Brá Kon­ráðs­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Davíð Odds­son, fyrrum for­mann flokks­ins og rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins harð­lega í stöðu­upp­færslu á Face­book í morgun fyrir breytta afstöðu gagn­vart sam­stöðu vest­rænna ríkja. Hún vitnar í tíu ára gamla ræðu hans þar sem Davíð sagði að sam­staða vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja innan NATO væri sú brjóst­vörn sem „villi­mennska komm­ún­ism­ans brotn­aði á“. Í ræð­unni sagði Davíð einnig að þörfin fyrir sam­stöðu væri engu minni en áður og að sam­eig­in­legir hags­munir sam­eig­in­leg gildi og sam­eig­in­leg saga reynd­ust öllu sund­ur­lyndi sterkara. Unnur segir í stöðu­upp­færsl­unni um ræðu Dav­íðs að  inni­hald hennar hafi verið „vel mælt, eins margt annað hjá þeim manni. En ég vissi það ekki fyrr en í gær að hann meinti ekk­ert með þessu.“

Davíð gagn­rýndi ákvörðun Gunn­ars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra um að styðja þving­un­ar­að­gerðir gegn Rússum í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins um helg­ina. Þar skrif­aði hann meðal ann­ars: „Hvernig gat það gerst að íslensk yfir­völd ákváðu að stefna álit­legum hluta íslensks útflutn­ings í stór­hættu, af þeirri ástæðu einni að fréttir hefðu borist af því, að þriðji sendi­ráðs­rit­ari ein­hvers staðar hefði náð sam­bandi við eina aðstoð­ar­skrif­stofu­stjór­ann í íslenska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem var í hús­inu þegar hinn hringdi vegna máls­ins.“ Þar sagði Davíð einnig að binda þurfi enda á „þennan skað­lega flumbru­gang“.

Davíð meinti ekk­ert með fyrri orðum



Í stöðu­upp­færsl­unni í morg­un­ ­segir Unnur Brá frá því að hún hafi fyrir tæpum ára­tug, þann 13. októ­ber 2005 hlýtt á ræðu manns sem hafi kom­ist svo að orði:

Davíð Oddssos. Davíð Odds­sos.

Auglýsing

„Sam­staða vest­rænna lýð­ræð­is­ríkja innan NATO var sú brjóst­vörn sem villi­mennska komm­ún­ism­ans brotn­aði á. Heims­myndin er nú breytt. Þær hættur sem stafa að lýð­ræð­is­ríkj­unum eru aðrar og marg­brotn­ari en áður. Hryðju­verka­menn og skálk­a­ríkin sem styðja þá eru ógn við frelsi okk­ar, líf okkar og limi. Þörfin á sam­stöðu er engu minni nú en áður. Það reyndi mjög á sam­starfið innan NATO í aðdrag­anda Íraks­stríðs­ins. Á þeim vett­vangi höfum við Íslend­ingar verið í hópi þeirra þjóða sem lagt hafa áherslu á að ekki mætti veikja tengslin á milli Evr­ópu­ríkj­anna og Banda­ríkj­anna. NATO stóð af sér þessa próf­raun. Sam­eig­in­legir hags­mun­ir, sam­eig­in­leg gildi og sam­eig­in­leg saga reynd­ust öllu sund­ur­lyndi yfir­sterkara. Banda­lagið er nú stærra en áður og mörg fyrrum ríki Austur - Evr­ópu njóta nú verndar og öryggis sem íbúar þeirra landa gátu ekki látið sig dreyma um fyrir örfáum árum. Okkur Íslend­ingum er það sér­stakt ánægju­efni að þjóðir Eystra­salts­ins eru nú orðnar full­gildir aðilar að banda­lag­inu. Inn­ganga þeirra tryggði í sessi frelsi þeirra og var­an­lega lausn undan því grimmdar oki sem á þeim hafði hvílt ára­tugum sam­an.“

Unnur segir síð­an: „Þetta var vel mælt, eins margt annað hjá þeim manni. En ég vissi það ekki fyrr en í gær að hann meinti ekk­ert með þessu.“









Fyrir tæpum ára­tug, hinn 13. októ­ber 2005, hlýddi ég á ræðu manns sem komst svo að orð­i:"­Sam­staða vest­rænna lýð­ræð­isrí...

Posted by Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir on Wed­nes­day, Aug­ust 19, 2015







Ræðu­bút­ur­inn sem Unnur vitnar í er úr setn­ing­ar­ræðu Dav­íðs Odds­sonar á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í októ­ber árið 2005. Þetta var síð­asta lands­funda­ræða Davíð sem for­manns en hann til­kynnti í aðdrag­anda þess lands­fundar að hann myndi ekki gefa lengur kost á sér sem for­maður og hætta afskiptum að stjórn­mál­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None