Upplýsingar um eignarhald 365 miðla ekki fullnægjandi

365.jpg
Auglýsing

For­svars­menn 365 miðla sendu nýjar upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á fyr­ir­tæk­inu til fjöl­miðla­nefndar í gær. Að sögn Elfu Ýr Gylfa­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra nefnd­ar­innar voru upp­lýs­ing­arnar ekki full­nægj­andi. „Því hefur verið óskað eftir ítar­legri upp­lýs­ingum um eign­ar­hald 365 miðla. Upp­lýs­ing­arnar eru því ekki aðgengi­legar á vef nefnd­ar­innar eins og er,“ segir Elfa.

Þann 18. des­em­ber síð­ast­lið­inn óskaði fjöl­miðla­nefnd eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald Auðar 1, sjóðs sem stýrt er af fjar­mála­fyr­ir­tæk­inu Virð­ingu. Auður 1 á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum en for­svars­menn 365 miðla hafa ekki viljað upp­lýsa fjöl­miðla­nefnd um end­an­lega eig­endur að sjóðn­um.

Kjarn­inn greindi frá því 29. des­em­ber að Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn séu á meðal ell­efu líf­eyr­is­sjóða sem eru nú óbeinir eig­endur að hlut í fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu 365 miðlum í gegnum Auði 1 fag­fjár­fest­inga­sjóð. Alls eru eig­endur sjóðs­ins 26 tals­ins.

Auglýsing

Einn þeirra, AC eign­ar­hald hf., á meira en tíu pró­sent hlut í sjóðn­um. Það er félag í eigu margra stærstu hlut­hafa og stjórn­enda Virð­ing­ar, fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu sem stýrir Auði 1 sjóðn­um. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Auðar 1 fyrir árið 2013 sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Ætl­aði ekki að kalla eftir frek­ari upp­lýs­ingum



Undir lok síð­asta árs var send út til­kynn­ing um að 365 miðl­ar, langstærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, og Tal hafi sam­ein­ast undir merkjum 365 eftir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti sam­runa ­fé­lag­anna, með skil­yrð­um. Við það eign­uð­ust fyrrum hlut­hafar Tals 19,8 pró­sent hlut í sam­ein­uðu félagi, sem mun bera nafn 365 miðla. Stærsti eig­andi Tals er Auður 1, sjóður í stýr­ingu hjá Virð­ingu, en hann á 18,6 pró­sent beinan hlut í 365 miðlum eftir að sam­run­inn gekk í gegn. Líkt og tíðkast með fram­taks- og fjár­fest­inga­sjóði er eign­ar­hald hans ekki opin­bert.

Kjarn­inn óskaði eftir upp­lýs­ingum frá fjöl­miðla­nefnd um hvort kallað hefði verið eftir upp­lýs­ingum um hvert end­an­legt eign­ar­hald á sjóðnum Auður 1 væri, enda segir í fjöl­miðla­lögum að nefndin eigi að fá allar upp­lýs­ingar og gögn svo „rekja megi eign­ar­hald og/eða yfir­ráð til ein­stak­linga, almennra félaga, opin­berra aðila og/eða þeirra sem veita þjón­ustu fyrir opin­bera aðila og getur fjöl­miðla­nefnd hvenær sem er kraf­ist þess að fram­an­greindar upp­lýs­ingar skuli veitt­ar“.

Þau svör feng­ust að nefndin hefði leitað eftir upp­lýs­ingum haustið 2014. Þar feng­ust þær upp­lýs­inga að starfs­menn Virð­ingar væru stjórn­ar­menn í Auði 1 og héldi á meiri­hluta atkvæð­is­réttar í félag­inu. Því skiptu eig­endur sjóðs­ins ekki máli. Það var því mat nefnd­ar­innar að sækj­ast ekki eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald­ið.

Kjarn­inn fjall­aði um málið í kjöl­farið og degi síðar hafi fjöl­miðla­nefnd skipt um skoðun og kall­aði eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eign­ar­hald­ið. 365 miðlum fékk frest til að svara þar til í gær, 5. jan­ú­ar. Svarið sem barst þótti ekki full­nægj­andi og því hefur fjöl­miðla­nefnd óskað eftir frek­ari upp­lýs­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None