Uppsveiflan í ferðaþjónustu hafin á ný

Fjöldi brottfara erlendra ferðamanna frá Keflavíkurflugvellil var 90 prósent af fjöldanum í sama mánuði árið 2019 og heildarfjöldi farþega er talsvert meiri en spár Isavia gerðu ráð fyrir. Erlend kortavelta hefur aldrei mælst jafn mikil í mánuðinum.

Hátt í 700 þúsund farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í síðasta mánuði.
Hátt í 700 þúsund farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í síðasta mánuði.
Auglýsing

Lifnað hefur yfir ferða­þjón­ust­unni það sem af er ári og ljóst er að hún er vöknuð af kór­ónu­veiru­dval­an­um. Til að mynda var heild­ar­fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl í maí og júni sam­tals 120 þús­undum meiri en gert hafði verið ráð fyrir í síð­ustu far­þeg­a­spá Isa­via sem birt var í fyrri hluta maí.

Þá hefur fjöldi brott­fara erlendra ferða­manna sem hlut­fall af fjölda árs­ins 2019 leitað hratt upp á við frá ára­mót­um. Í jan­úar var þetta hlut­fall 49 pró­sent en hlut­fallið var komið upp í 90 pró­sent í júní. Sum­arið 2019 var síð­asta alvöru ferða­þjón­ustu­sum­arið áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á á fyrri hluta árs­ins 2020.

Í júní var fjöldi brott­fara erlendra ferða­manna frá Kefla­vík­ur­flug­velli rúm­lega 176 þús­und sam­an­borið við tæp­lega 195 þús­und í sama mán­uði árið 2019. Fjöldi brott­fara erlendra far­þega frá Kefla­vík­ur­flug­velli er „enn frek­ari stað­fest­ing á því að upp­sveiflan í íslenskri ferða­þjón­ustu er hafin á ný,“ segir á vef Lands­bank­ans.

Auglýsing

12 pró­sent fleiri far­þegar í júní en spáð hafði verið

Heild­ar­fjöldi þeirra sem lögðu leið sína um Kefla­vík­ur­flug­völl var tæp­lega 694 þús­und í júní sam­kvæmt tölum sem Isa­via birti í lið­inni viku. Inni í þeirri tölu eru einnig íbúar lands­ins jafnt sem ferða­menn, auk skiptifar­þega. Það eru rúm­lega 12 pró­sent fleiri far­þegar en Isa­via hafði reiknað með í nýj­ustu far­þeg­a­spá sinni sem birt var þann 11. maí.

Fjöldi far­þega í maí var einnig meiri en gert hafði verið ráð fyr­ir. Heild­ar­fjöldi far­þega um Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar í þeim mán­uði nam rétt rúmum 489 þús­undum en það eru níu pró­sent fleiri far­þegar en spáð hafði verið fyrir um. Gert var ráð fyrir tæp­lega 448 þús­und far­þegum í heild í maí.

Met í erlendri korta­veltu

Nýjasta far­þeg­a­spá Isa­via er sú fyrsta sem gerð er eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Í henni er gert ráð fyrir að heild­ar­fjöldi far­þega verði 5.7 millj­ónir á þessu ári. Enn sem komið er hefur fjöldi far­þega í ein­stökum mán­uðum verið umfram það sem spáð var, líkt og áður seg­ir, svo lík­legt má telj­ast að end­an­legur fjöldi far­þega verði meiri. Alls fóru rúm­lega 7.2 millj­ónir far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2019.

Til við­bótar við þetta má nefna tölur yfir erlenda greiðslu­korta­veltu sem birtar voru fyrr í þessum mán­uði. Veltan hefur aldrei mælst eins mikil í júní­mán­uði líkt og í júní síð­ast­liðnum þegar hún nam 28,3 millj­örðum króna. Á vef Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar segir að hlut­fall erlendrar korta­veltu í heild­ar­korta­veltu hér á landi hafi verið 24,3 pró­sent í júní síð­ast­liðn­um. Þrátt fyrir met­veltu er hlut­fallið er lægra en það var í sama mán­uði árið 2019, þá var hlut­fallið 26,8 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent