Varnarkerfi gegn byssudrónum þróað Bandaríkjunum

drone.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum eru að útbúa varn­ar­kerfi til að fyr­ir­byggja árásir með drónum í einka­eigu. Alrík­is­lög­reglan í sam­starfi við lög­reglu­yf­ir­völd í ein­staka ríki eru að und­ir­búa hátækni­legt örygg­is­kerfi til að geta betur mætt dróna­árás­um. Þetta hefur frétta­stofan Reuters eftir heim­ilda­mönnum sín­um.

Banda­rísk stjórn­völd eru sögð hafa áhyggjur af árásum með drónum í einka­eigu eftir að mynd­bönd fóru að birt­ast á vefnum sem sýna dróna sem breyttir hafa verið til að bera og skjóta úr skamm­byss­um. Sak­sókn­ari í Conn­ect­icut hefur eitt slíkt mál til rann­sóknar en í júlí er 18 ára piltur tal­inn hafa skotið fjórum skotum úr skamm­byssu áfastri á dróna.

https://yout­u.be/FI--wFfipvA

Auglýsing

Kerfið sem lög­reglan er að útbúa benir örbylgjum að drón­anum sem ruglar boðin frá honum og til eig­and­ans. Flestir drónar eru for­rit­aðir þannig að ef sam­band við eig­anda tap­ast lendir hann sjálf­krafa á fyr­ir­fram ákveðnum hnit­um.

Lög­reglan í New York próf­aði tækn­ina á Time Squ­are á nýj­ársnótt, þegar torgið var fullt af fólki. Vegna þess hversu mikið af útstend­ingum fjöl­miðla og öðrum bylgjum voru í loft­inu mistókst til­raun­in.

Fjöldi óleyfi­legra dróna­fluga í Banda­ríkj­unum hefur marg­fald­ast á und­an­förnum árum í takti við vin­sældir þess­ara nýju tækja. Áhyggjur stjórn­valda vestra eru ekki síður byggðar á hætt­unni sem þessi tæki gætu skapað fyrir far­þega­flug.

Vitað er um mörg dæmi þess að drónar kom­ist í hættu­legt návígi við flug­vélar í flug­taki eða lend­ingu auk þess sem að þessi tæki hafa verið notuð til að smygla eit­ur­lyfjum yfir landa­mærin frá Mexíkó og ógnað öryggi for­seta Banda­ríkj­anna þegar ein­hver flaug drón­anum sínum yfir lóð Hvíta húss­ins í Was­hington.

Sam­kvæmt drögum að nýrri reglu­gerð um með­ferð dróna hér á landi verður bannað að fljúga drónum nærri lög­reglu­stöðv­um, fang­elsum og opin­berum bygg­ingum eins og Bessa­staði. Reglu­gerðin verður byggð á dönskum reglum um með­ferð dróna en þar er bannað að fljúga drónum nærri her­stöðvum og kon­ungs­höll­um. Þá verður bannað að fljúga drónum í eins og hálfs kíló­met­ers fjar­lægð frá flug­völl­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None