Vaxandi pirrings gætir hjá Framsókn í garð EES-samnings

frosti-715x320.jpg
Auglýsing

Vax­andi pirr­ings virð­ist gæta inn­an­ Fram­sókn­ar­flokks­ins í garð Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins (EES) og þeirra Evr­óputil­skip­ana sem Íslend­ingar verða að inn­leiða vegna veru sinnar í EES. Þessu er haldið fram í Frétta­blað­inu. Þar er rætt við Frosta Sig­ur­jóns­son, þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­mann efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, sem segir að reglu­verk EES sé íþyngj­andi og ekki allt Íslend­ingum í hag sem þaðan komi. Hann tekur dæmi um þrýst­ing um að lög­leiða geng­is­tryggð lán.

Í Frétta­blað­inu er einnig haft eftir Sig­rúnu Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra að "reglu­gerð­ar­farganið sem ber­ist í gegnum EES hafi leng verið eitur í beinum fram­sókn­ar­manna og ann­arra. Hún veltir því fyrir sér hvort ekki megi

Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra. Sig­rún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra.

Auglýsing

nota mild­ara orða­laga við þýð­ingu Evr­óputil­skip­ana. Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að í báðum stjórn­ar­flokk­unum séu mjög miklar áhyggjur af fjöldi þeirra til­skip­ana sem Alþingi berst til sam­þykkt­ar.

Á fundi sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt á laug­ar­dag lýstu nokkrir fund­ar­menn yfir efa­semdum um EES-að­ild Íslands.

Vill líka leggj­ast yfir Schengen



Frosti telur einnig að það þurfi að leggj­ast yfir hvort aðild Íslands að Schen­gen-­sam­starf­inu, sem átti að af­nema landamæra­eft­ir­lit á meðal aðild­ar­ríkja þess þegar sam­komu­lag um það gert, sé til góðs eða ekki.

Til að mynda hafi ekki tek­ist að efna lof­orð um ferða­lög án vega­bréfs og spyrja þurfi sig að því af hverju Bret­land kjósi að vera utan Schengen að hluta. Hann seg­ist geta hugsað sér að beita sér fyrir end­ur­mati á aðild að EES og Schengen. Meðal ann­ars ætti að meta hvort EES-­samn­ing­ur­inn væri besta formið á sam­starfi við þau ríki sem eru í Evr­ópu­sam­band­inu og vísar í önnur sam­starfs­form eins og frí­versl­un­ar­samn­inga sem annan mögu­leika.

EES-­samn­ing­ur­inn gæt­i kom­ist í upp­nám



Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að við­ræður Íslands, Nor­egs og Liechten­stein, ríkj­anna þriggja sem eru aðilar að EES-­samn­ingn­um, við Evr­ópu­sam­bandið vegna greiðslna í Þró­un­ar­sjóð EFTA hafi enn ekki skilað neinum árangri.

Greiðsl­urnar eru oft kall­aðar aðgöngu­mið­inn að innri mark­aði Evr­ópu, það gjald sem EES-löndin þrjú greiða fyrir auka­að­ild sína að þessum stærsta útflutn­ings­mark­aði sínum án þess að vera full­gildir með­limir Evr­ópu­sam­bands­ins.

Frá árinu 1994, þegar EES-­samn­ing­ur­inn gekk í gildi, hefur þurft að end­ur­semja um þennan aðgöngu­miða á fimm ára fresti. Síð­asta sam­komu­lag rann út 30. apríl 2014 og því má segja að samn­ingar hafi verið lausir í tæpt ár. Ástæð­an: Evr­ópu­sam­bandið hefur farið fram á allt að þriðj­ungs­hækkun á fram­lögum í sjóð­inn.

Miðað við þær kröfur myndi Ísland þurfa að greiða um 6,5 millj­arða króna í sjóð­inn næstu fimm árin, en á tíma­bil­inu 2009-2014 greiddum við 4,9 millj­arða króna.

Miðað við þær kröfur myndi Ísland þurfa að greiða um 6,5 millj­arða króna í sjóð­inn næstu fimm árin, en á tíma­bil­inu 2009-2014 greiddum við 4,9 millj­arða króna. Ekk­ert EFTA-­ríkj­anna þriggja sem greiða í sjóð­inn eru til­búin til að ganga að þessum kröfum og taka á sig hækk­anir af þess­ari stærð­argráðu. Og Evr­ópu­sam­band­ið, að minnsta kosti enn sem komið er, vill ekki gefa neitt eft­ir.

Vax­andi pirr­ingur fram­sókn­ar­manna í garð samn­ings­ins er athygl­is­verður í þessu sam­bandi, enda fram­sókn­ar­maður sem situr í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sem leiðir við­ræð­urn­ar, Gunnar Bragi Sveins­son. Tak­ist ekki að semja um fram­lög í Þró­un­ar­sjóð EFTA gæti EES-­samn­ing­ur­inn verið í upp­námi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None