north-korea-kim-jong-un.jpg
Auglýsing

Stjórn­völd í Norð­ur- og Suð­ur­-Kóreu munu í dag funda vegna ástands­ins á landa­mærum ríkj­anna, en her­menn sem gæta hlut­lausa svæð­is­ins við landa­mærin skipt­ust á skotum á fimmtu­dag­inn.

Vax­andi spenna hefur verið þar und­an­farna daga og Norð­ur­-Kóreu­menn hafa hótað því að ráð­ast í miklar hern­að­ar­legar aðgerðir ef Suð­ur­-Kóreu­menn hætta ekki að útvarpa í gegnum hátal­ara á landa­mær­unum frá og með deg­inum í dag. Suð­ur­-Kóreu­menn hafa brugð­ist við þeim hót­unum með því að flytja fjögur þús­und íbúa í nágrenn­inu frá landa­mær­unum og vara við því að ef Norð­ur­-Kóreu­menn grípi til ein­hverra aðgerða verði þeim svarað af fullri hörku.

Upp­haf spenn­unnar nú er sú að tveir suð­ur­-kóreskir her­menn slös­uð­ust alvar­lega af völdum jarð­sprengja á hlut­lausa svæð­inu á dög­un­um. Stjórn­völd í Suð­ur­-Kóreu segja að Norð­ur­-Kóreu­menn hafi komið sprengj­unum þar fyr­ir, en því hafna Norð­ur­-Kóreu­menn og segja það frá­leitt. Í kjöl­far þessa hófu her­menn að skjóta, en her­búðir beggja segja að hinir hafi skotið fyrst.

Auglýsing

Í kjöl­far spreng­ing­anna hófu Suð­ur­-Kóreu­menn að hefja á ný notkun hátalar­anna á svæð­inu, sem höfðu verið hljóðir í ell­efu ár fram að því. Útvarpað er frétt­um, veð­ur­spá og tón­list frá Suð­ur­-Kóreu á svæð­inu.

Banda­rískar her­flug­vélar hafa flogið yfir landa­mærin ásamt flug­vélum frá suð­ur­-kóreska hernum und­an­farna daga og í morgun sendi varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna frá sér yfir­lýs­ingu frá yfir­manni hers­ins, Martin Dempsey, þar sem fram kemur að hann hafi rætt við yfir­mann suð­ur­-kóreska hers­ins, Choi Yoon-Hee, í gær. Þeir hafi sam­mælst um að herir beggja ríkja muni fylgj­ast vel með Norð­ur­-Kóreu næstu daga og Banda­ríkin séu nú sem fyrr skuld­bundin því að verja Suð­ur­-Kóreu.

Tveir hátt­settir ráð­gjafar stjórn­valda sitt­hvoru megin við landa­mærin funda nú í þorp­inu Pan­munjom. Eins og BBC bendir á er hins vegar vanda­mál fólgið í því að aðilar máls­ins eru ekki einu sinni sam­mála um hvað hefur átt sér stað und­an­farna daga. Í sam­tali við Guar­dian segir Yang Moo-j­in, pró­fessor í Seúl, að vegna þess hversu hátt­settir ráð­gjafar séu nú komnir til fundar sé hægt að breyta þess­ari krísu í tæki­færi. Margir líti svo á að hót­anir Norð­ur­-Kóreu­manna séu til­raun til þess að ná athygli. Þó segja sér­fræð­ingar sem Guar­dian ræddi við að þessir atburðir und­an­farið séu þeir alvar­leg­ustu á svæð­inu frá því að Kim Jong-un komst til valda í Norð­ur­-Kóreu árið 2011.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None