Verðbólga mælist nú 0,2 prósent á evrusvæðinu og helst sú sama milli mánaða, byrjun júní til lok júlí, samkvæmt hagtölum sem Eurostat, hagstofa Evrópusambandins, sendi frá sér í gær. Orkuverð lækkaði um 5,6 prósent á mælingartímanum en matur, alkóhól og tóbak hækkaði um 0,9 prósent.
Atvinnuleysi mælist nú að meðaltali 11,1 prósent á evrusvæðinu og stendur í stað frá síðustu mælingu. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC veldur hægur bati á vinnumarkaði Evrópu áhyggjum á markaði og þykir fátt benda til þess að atvinnuleysi sé að minnka, að því er haft er eftir James Howat, hagfræðingi hjá Capital Economics.
Atvinnuleysið er mest í Suður-Evrópu, einkum Spáni, Portúgal, Ítalíu og Grikklandi, en þar mælist það yfir 20 prósent að meðaltali. Verst er staðan hjá ungu fólki, á aldrinum 18 til 30 ára, en hjá þessum hópi er atvinnuleysi að meðaltali yfir 35 prósent í fyrrnefndum ríkjum.