Verður ágóðanum af stöðugleikaskattinum hent á bál?

campfire_t610.jpg
Auglýsing

Í vik­unni verður að öllum lík­indum kynnt frum­varp um áætlun sem á að losa um fjár­magns­höft. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sagt að það verði lagt fram á vor­þingi og það eru ekki margir dagar eftir af því. Nú þegar virð­ist liggja fyrir að þau skref sem á að taka feli í sér að gefin verði út skulda­bréf í erlendri mynt til að færa kvikar eignir í lang­tíma­eignir auk þess sem lagður verður á svo­kall­aður stöð­ug­leika­skatt­ur.

Grein­ing­ar­deild Arion banka áætl­aði í síð­ustu viku að slíkur skattur gæti skilað allt að 529 millj­örðum króna, verði hann 30 pró­sent.  Þeir ráða­menn sem tjáð hafa sig opin­ber­lega um stöð­ug­leika­skatt­inn hafa allir lagt áherslu á að hann sé ekki inn­heimtur til þess að eyða í fram­kvæmdir eða að verða hluti af útgjöldum rík­is­sjóðs. Hvað verður þá gert við svo stóra fjár­hæð?

Í skýrslu hag­fræð­ing­anna Ásgeirs Jóns­sonar og Hersis Sig­ur­geirs­sonar um losun hafta, sem birt var í síð­ustu viku, segja þeir að grunn­á­stæða þess vanda sem Íslend­ingar standa frammi fyrir í dag, risa­vaxnar krónu­eignir útlend­inga innan íslenska efna­hags­kerf­is­ins, sé til­komin vegna fjór­fjöld­unar á pen­inga­magni í umferð á árunum 2003 til 2008. Pen­inga­prent­un, aðal­lega vegna mik­ils vaxtar íslensku bank­anna, leiddi þessa þróun af sér. Þessir pen­ingar sem voru prent­aðir eru nú komnir í eigu erlendra aðila sem reyna að kom­ast burt úr íslensku hag­kerfi með þá og í aðra gjald­miðla.

Auglýsing

Skýrslu­höf­und­arnir lögðu til að allar lausnir á þessum vanda ætt­u að byggja á því að pen­inga­magnið sem inn­heimt­ist með stöð­ug­leika­skatt­inum verði tekið úr umferð eða því umbreytt úr inn­lánum í lang­tíma­fjár­mögnun fyrir banka­kerf­ið. Allar aðrar leiðir muni leiða til verð­bólgu og óeðli­legrar hækk­unar á eigna­verði.

Þetta hljómar allt skyn­sam­legt. Það verður hins vegar að taka inn í dæmið að sú rík­is­stjórn sem nú situr að völdum nýtur fádæma óvin­sælda. Og það er freist­andi fyrir hana að sleppa því að henda öllum ágóð­anum á bálið með lang­tíma hags­muni að leið­ar­ljósi og nýta þess í stað hluta hans til að skapa sér skamm­tíma­vin­sæld­ir.

Mun hún stand­ast freist­ing­una?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None