Verjendur í Aurum máli vilja fá að yfirheyra dómara málsins

14087944054-ed1c1a2832-o-1.jpg
Auglýsing

Verj­end­ur sak­born­inga í Aur­um-­mál­inu svo­kall­aða hafa lagt fram beiðni þess efn­is að tveir dóm­arar í mál­inu, þeir Guð­jón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari og Sverrir Ólafs­son með­dóm­ari, verði boð­aðir til skýrslu­töku fyrir dómi, til að verj­ast ómerk­ing­ar­kröfu Rík­is­sak­sókn­ara á sýknu­dómi sem kveð­inn var upp í mál­inu í júní.

Verj­endur Lárusar Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóra Glitn­is, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­son­ar, athafna­manns, og Bjarna Jóhann­es­son­ar, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóra hjá Glitni, lögðu fram beiðn­ina fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í gær. Rík­is­sak­sókn­ari hefur mót­mælt kröfu verj­end­anna, en mál­flutn­ingur um hana fer fram fyrir dómi þann 11. mars næst­kom­andi.

Rík­is­sak­sókn­ari fer fram á ómerk­ingu sökum van­hæfis



Helgi Magnús Gunn­ars­son, vara­rík­is­sak­sókn­ari, hefur kraf­ist þess að Hæsti­réttur ómerki sýknu­dómana yfir sak­born­ingum  í Aur­um-­mál­inu og því verði vísað aftur heim í hérað til lög­legrar með­ferð­ar. Emb­ætti Rík­is­sak­sókn­ari byggir kröfu sína á meintu van­hæfi Sverris Ólafs­sonar pró­fess­ors, sem var sér­fróður með­dóm­ari í Aur­um-­mál­inu, þar sem hann er bróðir Ólafs Ólafs­son­ar, sem nýlega hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm í Hæsta­rétti fyrir aðild sína að Al-T­hani mál­inu svo­kall­aða.

Þá byggir krafa rík­is­sak­sókn­ara ekki síður á ummælum sem Sverrir lét falla í fjöl­miðlum um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara eftir að dómur í Hér­aðs­dómi var upp kveð­inn. Sak­sókn­ari telur ummælin gefa ríka ástæðu til að draga óhlut­drægni Sverris í efa. Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, hefur látið hafa eftir sér í fjöl­miðlum að emb­ætt­inu hafi ekki verið kunn­ugt um ætt­ar­tengsl Sverris og Ólafs meðan málið var til með­ferðar í hér­aðs­dómi og hefur gert athuga­semdir við að dóm­ari hafi ekki upp­lýst um ætt­ar­tengsl­in. Ólafur hefur sagt að allar líkur séu á að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hefði þá gert ahuga­semd við skipan Sverr­is. Sverrir gerði Guð­jóni St. Mart­eins­syni hér­aðs­dóm­ara grein fyrir tenslum sínum við Ólaf Ólafs­son, en ekki sér­stökum sak­sókn­ara.

Auglýsing

Fór hörðum orðum um sér­stakan sak­sókn­ara



Um­rædd ummæli Sverris Ólafs­son­ar, lét hann falla í frétt hjá RÚV þann 9. júní síð­ast­lið­inn, þar sem hann sak­aði sér­stakan sak­sókn­ara um að reyna að veikja sýknu­dóm­inn í Aur­um-­mál­inu með því að draga hæfi sitt í efa. Í frétt RÚV sagði Sverr­ir: „Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengslum þá ber það vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð. Mér finnst við­brögð hans hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerðir og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í mol­u­m.“ Þá má geta þess að Gestur Jóns­son, verj­andi Jóns Ásgeirs, hefur tekið undir orð Sverris í fjöl­miðl­um, um að hann trúi ekki að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki verið kunn­ugt um ætt­ar­tengsl ­mann­anna.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hyggj­ast verj­endur sak­born­ing­anna í Aurum mál­inu sýna fram á með umbeðnum skýrslu­tökum að sér­stökum sak­sókn­ara hafi verið kunn­ugt um bræðra­tengsl Sverris Ólafs­sonar og Ólafs Ólafs­son­ar, þrátt fyrir full­yrð­ingar emb­ætt­is­ins um hið gagn­stæða. Þá vilja verj­end­urnir fá stað­fest fyrir dómi að Guð­jóni St. Mart­eins­syni hér­aðs­dóm­ara og dóms­for­manni hafi sömu­leiðis verið kunn­ugt um ætt­ar­tengsl mann­anna og talið þau ekki hafa áhrif á hæfi Sverris til að gegna stöðu með­dóm­ara í Aur­um-­mál­inu.

Beiðni verj­end­anna á sér for­dæmi, en í Baugs­mál­inu svo­kall­aða fóru lög­menn­inn­irnir Gestur Jóns­son, verj­andi Jóns Ásgeirs Jóhann­es­son­ar, Jakob R. Möll­er, verj­andi Tryggva Jóns­son­ar, fram á að Sig­urður Tómas Magn­ús­son, settur rík­is­sak­sókn­ara í mál­inu, og dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur yrðu kall­aðir fyrir dóm sem vitni vegna mál­flutn­ings um kröfu Jóns Ásgeirs og Tryggva að mál­inu gegn þeim yrði vísað frá dómi. Þeirri beiðni var hafnað.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None