Verkfallsaðgerðir hefjast 10. apríl - allsherjarverkfall í maí

IMG_0108-1.jpg
Auglýsing

Starfs­greina­sam­bandið hefur boðað til umfangs­mik­illa verk­falls­að­gerða sem hefj­ast 10. apríl næst­kom­andi, ef Sam­tök atvinnu­lífs­ins verða ekki við kröfum um hækkun lægstu launa upp í 300 þús­und krón­ur. ­Björn Snæ­björns­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, segir að full alvara sé að baki fyr­ir­hug­uðum verk­falls­að­gerð­um, en vonar að ekki þurfi að koma til þeirra. „Það er full alvara á bak­við þær kröfur sem við höfum sett fram en auð­vitað von­umst við til að hægt verði að afstýra verk­fall­i,“ segir Björn.

Aðgerð­irnar fyr­ir­hug­uðu taka til um 7500 manns sem starfa á mat­væla­sviði (fisk­vinnslu, kjöt­vinnslu og í slát­ur­hús­um) og í þjón­ustu­greinum (ferða­þjón­ustu, ræst­ingum o.fl.), og tæp­lega 3000 í bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð, iðn­aði og flutn­ings­grein­um.

Starfs­greina­sam­band Íslands fer með samn­ings­um­boð fyrir um ríf­lega tíu þús­und manns í sextán aðild­ar­fé­lög­um. Við­ræðum sam­bands­ins við Sam­tök atvinnu­lífs­ins var slitið fyrir sléttri viku síðan en mikið skildi þá á milli samn­ings­að­ila og ekk­ert þok­að­ist í samn­ings­átt, að því er segir í til­kynn­ingu. Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafið haldið fast við þá stefnu að laun almenns verka­fólks hækki ekki um meira en 3-4%. „Í krónum talið þýðir það hækkun grunn­launa um 6.000-9.500 kr. Slíkt er alger­lega óvið­un­andi og var samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands­ins því knúin til að slíta við­ræð­unum og hefja und­ir­bún­ing aðgerða,“ segir í til­kynn­ingu frá SGS.

Auglýsing

Eru með 201 þús­und króna grunn­laun í dag



Taxtar félags­manna innan Starfs­greina­sam­bands­ins á almenna vinnu­mark­aðnum í dag eru frá 201.317 krónum en eftir 4 mán­aða störf er lág­marks­tekju­trygg­ingin 214.000 krón­ur. Flestir hópar innan raða SGS eru með samn­ings­bundna taxta upp á 207.814 krónur til 222.030 krónur eftir sjö ára starf. Hóp­ferða­bíl­stjórar sem eru í hæsta virka taxta hjá SGS eru með 238.043 krónur í grunn­inn eftir sjö ára starf.

Starfs­greina­sam­bandið hefur sett fram skýr mark­mið í kröfu­gerð sinni; að lægstu taxtar verði komnir upp í 300 þús­und krónur innan þriggja ára, þ.e. að almennt verka­fólk hafi mögu­leika á að fram­fleyta sér á grunndag­vinnu­laun­um.

Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands­ins á hinum almenna mark­aði fer með umboð fyrir rúm­lega 10.000 manns en Flóa­banda­lagið (Efl­ing, Hlíf og Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Kefla­víkur og nágrennis) semur sér­stak­lega, auk þess sem fjöldi sér­kjara­samn­inga er í gildi og taka aðgerð­irnar ekki til þeirra. Þá er tölu­verður hluti félaga í SGS í störfum hjá ríki og sveit­ar­fé­lög­um. Aðgerð­irnar núna snúa ein­göngu að Sam­tökum atvinnu­lífs­ins og atkvæði um verk­falls­boðun verða greidd af félags­mönnum sem taka laun sam­kvæmt kjara­samn­ingum á milli SGS og SA. 42% þeirra sem greiða atkvæði um verk­fall starfa á mat­væla­sviði (fisk­vinnslu, afurða­stöðv­um, kjöt­vinnslum og í slát­ur­hús­um) en 32% atkvæð­is­bærra félaga eru í þjón­ustu­greinum (ferða­þjón­ustu, ræst­ingum o.fl.), aðrir hópar telja bygg­ing­ar­starf­semi og mann­virkja­gerð, iðnað og far­ar­tækja- og flutn­ings­grein­ar.

Alls eru um 50.000 manns innan Starfs­greina­sam­bands­ins og er sam­bandið stærsta lands­sam­bandið innan ASÍ.

Atkvæða­greiðslan um verk­fall verður raf­ræn og stendur frá kl. 8:00 þann 23. mars til mið­nættis þann 30. mars. Gert er ráð fyrir að nið­ur­staðan liggi fyrir 31. mars, rúmri viku áður en aðgerð­irnar eiga að hefj­ast.

 Yf­ir­lit yfir verk­falls­að­gerðir





  1. apríl 2015




Alls­herj­ar­vinnu­stöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til mið­nættis sama dag, á félags­svæðum þeirra 16 aðild­ar­fé­laga sem veitt hafa SGS umboð.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða Ein­ing­ar-Iðju, Stétt­ar­fé­lags­ins Sam­stöðu og Verka­lýðs­fé­lags Suð­ur­lands.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða Verka­lýðs­fé­lags Snæ­fell­inga, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Sand­gerð­is, Bár­unnar stétt­ar­fé­lags og Stétt­ar­fé­lags Vest­ur­lands.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Grinda­vík­ur, Öld­unnar stétt­ar­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga og Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Bol­ung­ar­vík­ur.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða AFLs starfs­greina­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, Dríf­andi stétt­ar­fé­lags og Verka­lýðs­fé­lags Þórs­hafn­ar.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Grinda­vík­ur, Öld­unnar stétt­ar­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Vest­firð­inga, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Bol­ung­ar­vík­ur, Verka­lýðs­fé­lags Snæ­fell­inga og Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lags Sand­gerð­is.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða Ein­ing­u-Iðju, Stétt­ar­fé­lags­ins Sam­stöðu og Verka­lýðs­fé­lags Suð­ur­lands.

 



  1. apríl 2015




Vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis tekur til félags­svæða  AFLs starfs­greina­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, Dríf­andi stétt­ar­fé­lags, Verka­lýðs­fé­lags Þórs­hafn­ar, Bár­unnar stétt­ar­fé­lags og Stétt­ar­fé­lags Vest­ur­lands.

 



  1. apríl 2015




Alls­herj­ar­vinnu­stöðvun frá klukkan 12:00 á hádegi til mið­nættis sama dag, á félags­svæðum þeirra 16 aðild­ar­fé­laga sem veitt hafa SGS umboð.

 

12., 13., 15., 18., 19., 20., 21. og 22. maí 2015

Alls­herj­ar­vinnu­stöðvun frá mið­nætti til mið­nættis sama dag, á félags­svæðum þeirra 16 aðild­ar­fé­laga sem veitt hafa SGS umboð.

 



  1. maí 2015




Ótíma­bundin alls­herj­ar­vinnu­stöðvun hefst á mið­nætti aðfara­nótt 26. maí 2015 á félags­svæðum þeirra 16 aðild­ar­fé­laga sem veitt hafa SGS umboð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None