Viðskiptaráð hnýtir í Kára vegna ummæla um íslenska skattkerfið

karistef.jpg
Auglýsing

Við­skipta­ráð Íslands segir að Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ing­ar, hafi farið rangt með það skatt­hlut­fall sem hann þarf að greiða af arð­greiðslum til sín og það skatt­hlut­fall sem konan sem þrí­fur skrif­stof­una hans greiðir af tekjum sínum í þætt­inum Ferð til fjár. Ráðið kallar eftir að umræða um skatta­mál byggi á stað­reynd­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá ráð­inu sem Frosti Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri þess, og Björn Brynj­úlfur Björns­son hag­fræð­ing­ur, skrifa und­ir.

Kári Stef­áns­son vakti mikla athygli í þætt­inum Ferð til fjár sem sýndur var á RÚV í gær. Þar sagð­ist Kára blöskra að ein­göngu 20 pró­sent  skattur er greiddur af fjár­magnstekjum á meðan 40 pró­sent skattur er greiddur af tekj­um. Hann sagði enn fremur að skatt­kerfið væri órétt­látt og að vegna smæðar sinnar þoli íslenskt sam­fé­lag ekki jafn mik­inn ójöfnuð og stórt sam­fé­lag.

Kári sagði m.a.: „„Eitt af því sem mér blöskrar er að þegar ég fæ arð af eignum mín­um, með því að selja eignir sem ég á, þá greiði ég af því 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt, en konan sem þvær gólfið á skrif­stofu mínni með sínar 350 til 400 þús­und krónur á mán­uði, borgar 40 pró­sent tekju­skatt,“ segir Kári. „Hvernig í ósköp­unum getur það kall­ast rétt­læti að menn borga minna af tekjum sem þeir hafa af eignum sínum án þess þurfa að standa upp úr stól en þeir þurfa að borga fyrir fyrir það sem þeir vinna fyrir í sveita síns and­lits.“

Auglýsing

Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Frosti Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs.

Við­skipta­ráð Íslands hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna þess­arra ummæla Kára þar sem ráðið telur sig knúið til að leið­rétta ýmis­legt sem Kári sagði í þætt­in­um. Í til­kynn­ing­unni segir meðal ann­ars að skúr­ing­ar­konan í dæmi Kára greiði 25 pró­sent tekju­skatt, ekki 40 pró­sent, að teknu til­liti til per­sónu­af­slátt­ar, og fái auk þess greiðslur úr vaxta- og barna­bóta­kerf­inu ef við­kom­andi á hús­næði eða börn. Þá sé skatt­lagn­ing á arð­greiðslur 36 pró­sent, en ekki 20 pró­sent líkt og Kári hélt fram. Félagið sem greiðir út arð þurfi að greiða 20 pró­sent skatt af greiðsl­unum og svo þurfi ein­stak­ling­ur­inn sem fær arð­inn að greiða önnur 20 pró­sent af arð­greiðsl­unni sjálfri.

Kári sagði einnig það sjón­ar­mið vera uppi að eðli­legt væri að setja hámark á hvað menn greiða til sam­fé­lags­ins svo þeir væru ekki að bera of stóran hluta af byrð­inni.

Við­skipta­ráð er þessu ósam­mála og segir að einu tekju­skatt­arnir sem legg­ist með hlut­falls­lega þyngri hætti á tækju­lægri ein­stak­linga séu nef­skatt­ar.

Í til­kynn­ingu Við­skipta­ráðs segir að lokum að það sé „grund­vall­ar­mark­mið að Íslend­ingar búi við skatt­kerfi sem hefur sem minnst nei­kvæð áhrif á lífs­kjör ein­stak­linga og sem breið­ust sátt ríkir um. Til að svo megi verða þarf umræða um stefnu í skatta­málum hins vegar að byggja á stað­reynd­um. Þegar litið er til þeirra má sjá að skatt­byrði ein­stak­linga er þyngri eftir því sem tekjur þeirra eru hærri. Full­yrð­ingar um annað stand­ast ekki nán­ari skoð­un.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None