Vigdís Hauksdóttir spyr ráðherra um 110 prósent leiðina

Vigd.s.Hauks_.64.jpg
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefnd­ar, lagði í dag fram fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nið­ur­færslu hús­næð­is­lána sam­kvæmt 110 pró­sent leið­inni svoköll­uðu, sem fram­kvæmd var í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Vig­dís spyr meðal ann­ars um hversu miklar afskriftir lána hafi verið að með­al­tali og hversu margir hafi fengið afskrif­aðar skuldir eftir upp­hæð­um.

Fyr­ir­spurn Vig­dísar er í tíu lið­um. Hún spyr meðal ann­ars hver kostn­aður hafi verið af leið­inni fyrir rík­is­sjóð ann­ars vegar og Íbúða­lána­sjóð hins veg­ar, hver kostn­aður Umboðs­manns skuld­ara hafi verið í tengslum við 110 pró­sent leið­ina og hvernig hóp­ur­inn sem fékk úrlausn mála skipt­ist eftir mán­að­ar­tekj­um.

Þá spyr hún hversu margir ein­stak­lingar sem fóru 110 pró­sent leið­ina hafi borgað auð­legð­ar­skatt af eigum sínum eftir afskriftir á meðan skatt­ur­inn var inn­heimt­ur, hvernig afskriftir skipt­ust eftir lands­hlutum og hvernig afskriftir skipt­ust eftir aldri.

Auglýsing

Vig­dís var ekki eini þing­mað­ur­inn sem óskaði eftir upp­lýs­ingum um skulda­mál og afskriftir á Alþingi í dag. Kjarn­inn greindi í dag frá beiðni tíu þing­manna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána, hina svoköll­uðu leið­rétt­ingu, þar sem nýlega útkomin skýrsla Bjarna Bene­dikts­sonar svar­aði ekki öllum spurn­ingum sem hún átti að gera, að mati þing­mann­anna. Þá lagði Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, einnig fram fyr­ir­spurn í dag til fjár­mála- og efna­hags­ráð­gjafa um skulda­upp­gjör ein­stak­linga, félaga og fyr­ir­tækja við fjár­mála­stofn­anir í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. Hann spyr meðal ann­ars um hvernig staðið hafi verið að setn­ingu reglna varð­andi skulda­upp­gjör, hvort tryggt hafi verið að jafn­ræð­is­reglu var fylgt og hvort ráð­herra telji að efn­is­legar ástæður og rétt­læt­is­rök séu fyrir því að gerði verði sér­stök úttekt á vinnu­brögðum fjár­mála­stofn­ana í meiri­hluta­eigu rík­is­ins varð­andi skulda­upp­gjör ein­stak­linga, fyr­ir­tækja og félaga á árunum 2009 til 2013.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None