Vigdís segir ríkisforstjóra haga sér eins og "smákrakkar í sælgætisbúð"

Vigd.s.Hauks_.64.jpg
Auglýsing
"Það virð­ist vera sama steypan í rekstri Isavía og Íslands­póst­s," segir Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar Alþing­is, í stöðu­upp­færslu á Face­book.



Við hana tengdir hún frétt Við­skipta­blaðs­ins um að tíu stjórn­endur Isavía séu með bif­reiðar til umráða vegna starfa sinna. Í færsl­unni segir enn frem­ur: "bæði félögin eru ohf. Ég hef fyrir löngu efast um það rekstr­ar­form - for­stjórar og stjórnir ohf félaga rík­iss­ins haga sér eins og smá­krakkar í sæl­gæt­is­búð - og svo er sagt við fjár­veit­inga­valdið - ykkur kemur þetta ekki við ..."




vigdisfb


Greiddu líka ferðir maka



Í frétt Við­skipta­blaðs­ins segir að tíu starfs­menn í stjórn­un­ar­stöðum hjá Isa­via hafi bif­reiðar til afnota vegna starfa sinna. Hlunn­indi af umræddri bíla­notkun námu tæpum 2,6 millj­ónum króna á síð­asta ári. Isa­via hefur einnig verið til umfjöll­unar fjöl­miðla eftir að Kast­ljós greindi frá því fyrr í vik­unni að fyr­ir­tæk­ið, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hafi greitt fyrir utan­lands­ferðir maka for­stjóra þess, Björns Óla Hauks­son­ar. Alls hefur Isa­via greitt tæp­lega 700 þús­und krónur vegna fimm ferða makans frá árinu 2010.




Björn Óli sagði í Kast­ljósi á þriðju­dag að vera maka væri oft mik­il­væg í ferðum á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Hún hjálpi til við að mynda tengsl. Fleiri ferðir fyrir maka stjórn­enda Isa­via voru greiddar af fyr­ir­tæk­inu á und­an­förnum árum en þær hafa verið end­ur­greidd­ar.




Stjórn­endur Íslands­pósts allir á fyr­ir­tækja­bílum



DV greindi frá því í febr­úar að Íslands­póstur greiddi sam­tals 29,5 millj­ónir króna fyrir fimm jeppa og einn fólks­bíl sem for­stjóri og fram­kvæmda­stjórar rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins hafa til umráða sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ing­um. Kostn­aður við rekstur bif­reið­anna nam alls 8,8 millj­ónum króna í fyrra, en á þeim tíma lagði fyr­ir­tækið áherslu á aðhald í rekstri eftir 119 millj­óna króna tap á árinu 2013. Íslands­póstur hélt áfram að tapa pen­ingum í fyrra þegar fyr­ir­tækið tap­aði 43 millj­ónum króna.




Þess má geta að Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, for­stjóri Íslands­pósts, er stjórn­ar­for­maður Isav­ía.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None