Vigdís: Sigmundur Davíð verðmætasti stjórnmálamaður frá lýðveldisstofnun

Vigd.s.Hauks_.64.jpg
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar Alþing­is, telur að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sé lík­lega verð­mæt­asti stjórn­mála­maður í sögu Íslands. Þetta kom fram í við­tali við hana í Bít­inu á Bylgj­unni í morg­un, þar sem hún ræddi ýmis mál.

Þátta­stjórn­endur spurðu Vig­dísi um það hvort fram­sókn­ar­menn stæðu nú uppi sigri hrós­andi eftir að áætlun um losun hafta var kynnt. „Þetta stenst allt, alveg eins og Ices­a­ve, alveg eins og allt annað eftir að Sig­mundur Davíð varð for­sæt­is­ráð­herra, þá kom skulda­nið­ur­fell­ingin til, nú við vitum alveg hvernig Ices­ave fór, þannig að lík­lega er nú Sig­mundur Davíð verð­mæt­asti stjórn­mála­maður lands­ins frá lýð­veld­is­stofn­un,“ sagði Vig­dís þegar hún ræddi um kosn­inga­lof­orð Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Hún sagði að með lækkun vaxta­kostn­aðar rík­is­ins, þegar skuldir þess hafi verið greiddar niður eins og til stendur að gera, verði komið svig­rúm „upp á 40 til 50 millj­arða sem áður voru greiddir í vexti til að reka landið og ráð­stafa til for­gangs­mála.“ Hún segir að vaxta­kostn­aður rík­is­ins nemi „einum nýjum spít­ala á ári,“ þannig að svig­rúmið sem mynd­ist verði mik­ið.

Auglýsing

Þá sagði Vig­dís að samið hefði verið við kröfu­haf­ana, enda væri alltaf best að reyna að ná samn­ingum í deil­um. „Eins og alþjóð veit þá urðu hér gríð­ar­lega mikil þátta­skil í rekstri rík­is­ins í síð­ustu vikur þegar samn­ingar náð­ust við kröfu­haf­ana, svo fram­tíðin er björt.“

Þessi ummæli Vig­dísar eru nokkuð á skjön við ummæli for­sæt­is­ráð­herra, sem hefur sagt að ekki hafið verið samið við kröfu­hafa. Það hafa Bene­dikt Gísla­son og Sig­urður Hann­es­son, sem eru vara­for­menn fram­kvæmda­hóps um losun haft­anna, einnig sag­t. „Við stóðum ekki í neinum samn­inga­við­ræð­um. Ein­hverjir aðrir kunna að hafa haldið á ein­hverjum tíma­punkti að slíkt stæði til boða, en þeim varð mjög fljótt ljóst að sú væri ekki raun­in. Þannig að upp­lýs­inga­skiptin sneru af okkar hálfu meira um það að leggja mat á það hvort þeirra hug­myndir og aðferða­fræði féllu að okkar skil­yrðum eða ekki, og að reyna að leiða þá að nið­ur­stöðu sem sam­rým­ist hags­munum Íslands,“ er haft eftir þeim í við­tali í Við­skipta­blað­inu.

Ekki hægt að lög­binda afnám verð­trygg­ingar



Hún ræddi einnig um þá gagn­rýni sem sett hefur verið fram á Fram­sókn­ar­flokk­inn, meðal ann­ars vegna skulda­nið­ur­fell­inga, og sagði gagn­rýn­ina stundum óbil­gjarna. „Sá mál­flutn­ingur er hafður uppi að skulda­nið­ur­fell­ing til heim­il­anna komi ekki til fram­kvæmda eða virki ekki vegna þess að það var verið að hækka stýri­vexti. Það sem var tekið af höf­uð­stól lán­anna, það kemur ekki aft­ur,“ sagði Vig­dís. Gagn­rýnin væri „týpískur mál­flutn­ingur jafn­að­ar­manna sem höfðu ekki kjark til að gera þetta á sínum tíma og tóku kröfu­hafa og fjár­magns­eig­endur fram yfir heim­ilin í land­in­u.“

Vig­dís var einnig spurð um afnám verð­trygg­ing­ar, sem fram­sókn­ar­menn höfðu einnig sem kosn­inga­lof­orð í síð­ustu kosn­ing­um. „Það er ekki hægt að lög­binda það að afnema verð­trygg­ingu. Núna hefur fólk þá kosti eins og það reyndar hafði áður að taka íbúða­lán með föstum vöxtum eða verð­tryggðum vöxtum þannig að þetta er bara allt í vinnslu, ég trúi því að það sé næsta verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar að fara djúpt ofan í þessi mál og skoða þau og hvað er hægt að ger­a,“ sagði Vig­dís og bætti því við að líf­eyr­is­sjóðir og fjár­festar berð­ust á móti því að verð­trygg­ing væri afnum­in, „því það er drævið í fjár­fest­ingum á Íslandi, það er verð­trygg­ing­in.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None