Víglundur: Ekki búið að hrekja ásakanir mínar

vigundur_gagnrynir.copy_.013.jpg
Auglýsing

Víglundur Þor­steins­son segir að þrátt fyrir skýrslu Brynjars Níels­sonar alþing­is­manns til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar sé ekki búið að hrekja ásak­anir hans um að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og eft­ir­lits­að­ilar hafi framið lög­brot og haft af íslenskum fyr­ir­tækjum og heim­ilum um 300 til 400 millj­arða króna við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins á árinu 2009. Þessir fjár­munir hefðu verið færðir kröfu­höfum föllnu bank­anna. Þetta kom fram í útvarps­þætt­inum Bít­inu á Bylgj­unni í morg­un, en Víglundur og Brynjar voru gestir þátt­ar­ins.

Brynjar skil­aði skýrslu sinni í gær. Þar sagði meðal ann­ars að úti­lokað væri að taka undir sum sjón­ar­mið Víg­lundar og Brynjar seg­ist sjálfur ekki taka undir ásak­anir um að svikum og blekk­ingum gafi verið beitt til  að gæta hags­muna ein­hverra útlend­inga.

Víglundur skamm­aði Brynjar



Brynjar fór yfir nið­ur­stöðu sína í þætt­inum og sagði að hann treysti sér ekki til að segja að menn hafi farið á svig við lög. Hann seg­ist hafa kom­ist að því að þetta hafi allt verið það stórar og miklar ákvarð­anir að hann telji að það eigi að skoða. En allt þetta ferli hafi verið sam­þykkt á Alþingi og þar af leið­andi hafi verið laga­heim­ild fyrir því.

Víglundur sagð­ist ekki hafa orðið sér­stak­lega fyrir von­brigðum með nið­ur­stöðu Brynjars. Honum hafi fund­ist vinnan hafa dreg­ist og að ekki hafi verið haldið vel að verki. „Ég ætla bara að skamma Brynjar fyrir að vera að leggj­ast svo lágt að hnýta í mig í lokin fyrir að ég hafi ekki unnið vinn­una fyrir hann.“

Auglýsing

Brynjar Níelsson skilaði skýrslu sinni til stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í gær. Brynjar Níels­son skil­aði skýrslu sinni til stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd í gær.

Skoðun Víg­lundar er sú að Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) hafi getað og mátt taka við­bót­ar­á­kvöðrun og lækka yfir­færslu­verð­mæti lána sem færð voru yfir í nýju bank­anna. Hann segir að Brynjar hafi hins vegar kom­ist að því að FME hafi mátt fram­selja vald sitt til fjár­mála­ráð­herra, en Víglundur telur það ein­kenni­lega lög­skýr­ingu að FME megi það.

Brynjar sagð­ist ekki horfa svona á mál­ið. Það þurfi að horfa á tvenn lög, ann­ars vegar neyð­ar­lögin og hins vegar stjórn­ar­skrá­in. FME getur ekki tekið ákvörðun um eign­ar­nám án aðkomu kröfu­hafa.

Segir Þor­stein og Jóhannes Karl hafa skrifað í skýrsl­una



Heimir Karls­son, umsjón­ar­maður Bít­is­ins, spurði Víglund hvort það væri ekki búið að hrekja þær ásak­anir hans að stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og eft­ir­lits­að­ilar hafi kerf­is­bundið og vilj­andi verið að brjóta lög. Víglundur sagði að það væri ekki búið að hrekja það.

Hann sagð­ist þekkja þau rök sem Brynjar setti fram í skýrslu sinni vel, enda hafi hann svarað þeim í grein­ar­skrifum vegna skrifa Jóhann­esar Karls Sveins­son­ar, lög­manns sem starf­aði sem ráð­gjafi við end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins, og Þor­steins Þor­steins­son­ar, sem var aðal­samn­inga­maður rík­is­ins í við­ræðum við kröfu­hafa um end­ur­skipu­lagn­ing­una. Víglundur sagði að honum sýnd­ist sem að þeir tveir hefðu kannski „skrifað eitt­hvað í þess­ari skýrslu fyrir Brynjar eða lagt honum til efni í hana“.

Brynjar sagði það að þeir tveir og margir aðrir hefðu lagt til efni. Hann hafi rætt við marga sem að vinn­unni hefðu kom­ið, meðal ann­ars Jóhannes Karl og Þor­stein. Hann hafi líka rætt við marga sem hefðu tekið undir ásak­anir Víg­lund­ar. Það hafi hins vegar engin kann­ast við ásak­anir Víg­lundar um að ein­stök lán hefðu verið afskrifuð og færð þannig yfir í nýju bank­anna.

Segir tvo þing­menn af 63 hafa opnað gögnin



Víglundur sagð­ist hafa fundið tvo þing­menn af 63 sem hafi opnað gögnin sem hann sendi þeim í síð­asta mán­uði. Í þeim lagði hann fram ásak­anir sínar á hendur stjórn­mála­mönn­um, emb­ætt­is­mönnum og eft­ir­lits­að­il­um.

Þátt­ar­stjórn­endur spurðu Víglund af hverju Stein­grímur J. Sig­fús­son, sem var fjár­mála­ráð­herra árið 2009, og Víglundur ásakar um að hafa afhent kröfu­höfum bank­anna, hefði átt að standa í blekk­ingum og svikum gagn­vart heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins. Víglundur svar­aði:  „Þú verður að spyrja Stein­grím að því. Af hverju gerði hann þetta?“

Að lokum boð­aði Víglundur að hann ætli sér að svara skýrslu Brynjars með ítar­legum hætti fyrir miðjan mars.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None