Víglundur segir Gylfa Magnússon og Steingrím J. Sigfússon lögbrjóta

vigundur_gagnrynir.copy_.013.jpg
Auglýsing

Víglundur Þor­steins­son hefur sent alþing­is­mönnum opið bréf þar sem hann fer fram á að þau „meintu og við­tæku lög­brot og afleið­ingar þeirra“ sem hann sendi þing­mönnum gögn um í jan­úar síð­ast­liðnum verði rann­sökuð af Rík­is­sak­sókn­ara. Í bréf­inu ned­ur­tekur hann fyrri ásak­anir á hendur íslenskum stjórn­mála­mönn­um, emb­ætt­is­mönnum og eft­ir­lits­að­ilum sem hann segir að hafi framið lög­brot og með því haft af íslenskum fyr­ir­tækjum og heim­ilum um 400 til 500 millj­arða króna við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins á árinu 2009. Þessir fjár­munir hefðu verið færðir kröfu­höfum föllnu bank­anna.

Í bréf­inu segir að þessi verkn­aður hafi beinst gegn lög­mætum ákvörð­unum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem grund­vallar hafi á jafn­ræði og sann­girni við lausn á stærsta efna­hags­á­falli þjóð­ar­inn­ar. „Í stað þess komu geð­þótta­á­kvarð­an­ir, ójafn­ræði, leynd, póli­tískur klíku­skapur og vild­ar­vina­greiðar með alvar­legum afleið­ingum fyrir okkur Íslend­inga. Með þessum ákvörð­unum sýn­ist mér sem tveir ráð­herrar hið minnsta, Stein­grímur J. Sig­fús­son og Gylfi Magn­ús­son hafi bakað sér ábyrgð sam­kvæmt reglum 8. og 9. laga um ráð­herra­á­byrgð, gegnið gegn reglum neyð­ar­laga og ann­arra laga svo sem almennra hegn­ing­ar­laga. Tekið sér vald sem Alþingi hafði falið Fjár­mála­eft­ir­lit­in­u.“

Síðar í bréf­inu segir Víglund­ur: „Ég tel hafið yfir allan vafa að þau gögn sem ég hef sent Alþingi geymi ítar­legar upp­lýs­ingar um alvar­leg lög­brot ráð­hera, emb­ætt­is­manna og fleiri svo sem banka­manna á árunum 2009 til 2013.“

Auglýsing

Brynjar tók ekki undir ásak­anir Víg­lundar



Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Víglundur ber á torg ásak­anir sín­ar. Það gerði hann í byrjun árs 2014 og aftur í jan­úar síð­ast­liðn­um.

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sem situr í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, var fengin til að fara yfir málið og skil­aði skýrslu 17. febr­úar síð­ast­lið­inn. Í henni tók Brynjar ekki undir ásak­anir Víglundur um að svikum og blekk­ingum hefði verið beitt við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins til að gæta hags­muna erlendra aðila.

Víglundur taldi nið­ur­stöðu Brynjars ekki hrekja ásak­anir sínar og boð­aði að hann myndi svara skýrslu Brynjars með ítar­legum hætti fyrir miðjan mars­mán­uð. Þau svör bár­ust í dag, 4. maí.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None