Vill að Seðlabankinn kanni grundvöll fyrir skaðabótamáli gegn Kaupþingi

Auglýsing

Unnið er að því í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að kanna rétt­ar­stöðu íslenska rík­is­ins vegna Al Thani dóms­ins til hlít­ar. Auk þess er verið að kanna hvort end­ur­skoða þurfi ákveðna þætti lög­gjafar um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem eru til umm­fjöll­unar í for­sendum dóms Hæsta­rétt­ar. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um hvort ein­hver form­leg vinna væri hafin í ráðu­neyt­inu við að kanna mögu­lega bóta­kröfu á hendur slita­búi Kaup­þings í kjöl­far dóms­ins.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, svar­aði fyr­ir­spurn Guð­mundar Stein­gríms­son­ar, for­manns Bjartrar fram­tíð­ar, um við­brögð rík­is­ins við Al Thani dómnum á Alþingi í gær. Þar sagði Bjarni meðal ann­ars það vera áleitna spurn­ingu „hvort með þeim sak­næma hætti sem Hæsti­réttur hefur nú fjallað um hafi stjórn­völdum verið gefið við­bót­ar­til­efni til að koma bank­anum til bjargar sem gæti aftur leitt af sér mögu­lega bóta­kröfu rík­is­ins á hendur slita­bú­inu. Það er eitt­hvað sem ég held að við ættum að taka til skoð­un­ar".

Seðla­bank­inn kanni grund­völl fyrir skaða­bóta­máli



Kjarn­inn beindi í kjöl­farið spurn­ingu til ráðu­neyt­is­ins um hvort vinna við könnun á mögu­leikum form­legrar bóta­kröfu væri hafin innan þess. Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að í til­efni af dóms­upp­kvaðn­ingu Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu hafi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnt fyrir rík­is­stjórn í dag að hann „hyggst beina því til Seðla­banka Íslands að bank­inn kanni grund­völl fyrir höfðun skaða­bóta­máls vegna þess tjóns sem Seðla­banki Íslands varð fyrir í tengslum við fall Kaup­þings banka hf. og leiða má af því að lána­fyr­ir­greiðsla Seðla­banka Íslands við Kaup­þing banka hf. hafi veirð byggð á vill­andi og röngum upp­lýs­ingum um stöðu Kaup­þings banka hf.“

Sam­kvæmt svörum frá Seðla­bank­anum hefur lög­mönnum hans verið falið að skoða mál­ið.

Auglýsing

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun októ­ber 2014 að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna þess­arar lán­veit­ingar sé áætlað um 35 millj­arðar króna.

Umrædd lána­fyr­ir­greiðsla var þrauta­var­ar­lán sem Seðla­bank­inn veitti Kaup­þingi 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi. Lánið var upp á 500 millj­ónir evra, um 75 millj­arðar króna á núvirði. Fyrir lán­inu var tekið veð í danska FIH-­bank­anum sem reynd­ist mun verð­minna en upp­haf­lega var haldið fram. Kjarn­inn greindi frá því í byrjun októ­ber 2014 að tap íslenskra skatt­greið­enda vegna þess­arar lán­veit­ingar sé áætlað um 35 millj­arðar króna.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir einnið að unnið sé „að því innan fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins að kanna til hlítar rétt­ar­stöðu rík­is­ins að öðru leyti í tengslum við þetta mál og hvort end­ur­skoða þurfi ákveðna þætti lög­gjafar um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem til umfjöll­unar eru í for­sendum dóms Hæsta­rétt­ar.“

Ófyr­ir­leitni og skeyt­ing­ar­leysi



Dómur Hæsta­réttar í Al Thani mál­inu þykir marka tíma­mót í íslenskri rétt­ar­sögu. Þar voru Sig­urður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, og Ólafur Ólafs­son, einn stærsti hlut­hafi Kaup­þings, voru sak­felldir fyrir aðild sína að Al-T­hani mál­inu svo­kall­aða. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sig­urður fjögur ár, Ólafur og Magn­ús ­fjögur og hálft ár.

Í dómi Hæsta­réttar um ákvörðun refs­ingar segir meðal ann­ars: „Hátt­semi ákærðu sam­kvæmt þessum köflum ákæru fól í sér alvar­legt trún­að­ar­brot gagn­vart stóru almenn­ings­hluta­fé­lagi og leiddi til stór­fellds fjár­tjóns. Brotin sam­kvæmt III. og IV. kafla ákæru beindust í senn að öllum almenn­ingi og fjár­mála­mark­að­inum hér á landi í heild og verður tjón­ið, sem leiddi af þeim beint og óbeint, ekki metið til fjár. Þessi brot voru stórum alvar­legri en nokkur dæmi verða fundin um í íslenskri dóma­fram­kvæmd varð­andi efna­hags­brot.

[...]

Kjarn­inn í hátt­semi ákærðu fólst í þeim brot­um, sem III. kafli ákærunnar snýr að, en þau voru þaul­skipu­lögð, drýgð af ein­beittum ásetn­ingi og ein­dæma ófyr­ir­leitni og skeyt­ing­ar­leysi. Öll voru brotin framin í sam­verkn­aði og beindust að mik­il­vægum hags­mun­um. Verður og að líta til þess að af broti sam­kvæmt III. kafla ákæru hafði ákærði Ólafur óbeina fjár­hags­lega hags­muni gegnum félag, sem eins og fyrr greinir var næst stærsti hlut­haf­inn í Kaup­þingi banka hf. Ákærðu, sem ekki hafa sætt refs­ingu fyrr, eiga sér engar máls­bæt­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None