Vill biðjast afsökunar á Íraksstríðinu

rsz_h_52123580.jpg
Auglýsing

Jer­emy Cor­byn, fram­bjóð­andi til for­manns breska Verka­manna­flokks­ins, seg­ist ætla að biðj­ast opin­ber­lega afsök­unar á Íraks­stríð­inu fyrir hönd flokks­ins, ef hann nær kjöri. Hann vill biðja bresku þjóð­ina afsök­unar á "blekk­ing­um" sem hafi verið beitt í aðdrag­anda inn­rás­ar­innar árið 2003 og vill biðja írösku þjóð­ina afsök­una á afleið­ing­unum og þján­ingum þeirra í kjöl­far henn­ar.

Tólf ár eru frá því að Bretar tóku þátt í inn­rásinni í Írak með Banda­ríkja­mönn­um. Verka­manna­flokk­ur­inn var þá í rík­is­stjórn undir for­ystu Tony Bla­ir, sem hefur ítrekað komið sér hjá því að biðj­ast afsök­unar á þætti Breta. Þátt­takan í stríð­inu er enn mjög við­kvæm innan Verka­manna­flokks­ins.

"Sem flokkur vorum við í þeirri leiðu stöðu að standa með einni verstu hægri­st­jórn í banda­rískri sög­u," segir Cor­byn. Hann segir stríðið hafa verið rangt í eðli sínu og það hafi verið mis­tök af skelfi­legri stærð­argráðu.

Auglýsing

Cor­byn segir í skrif­legri yfir­lýs­ingu til breska blaðs­ins Guar­dian að hann vilji fækka hern­að­ar­legum inn­gripum Breta í fram­tíð­inni. "Segjum að við munum aldrei framar setja her­menn okkar í hættu að óþörfu eða setja stöðu lands­ins í heim­inum í hættu. Gerum það ljóst að Verka­manna­flokk­ur­inn mun aldrei gera sömu mis­tökin aft­ur, mun aldrei framan virða Sam­ein­uðu þjóð­irnar og alþjóða­lög að vettug­i."

Með afsök­un­ar­beiðn­inni vill Cor­byn hjálpa til við að vinna aftur hylli fólks sem yfir­gaf flokk­inn vegna máls­ins. Cor­byn sjálfur greiddi atkvæði gegn inn­rásinni á sínum tíma og hefur alltaf staðið við and­stöðu sína.

Rann­sókn á þætti Breta taf­ist um mörg ár



Sex ár eru frá því að ákveðið var að rann­saka þátt Breta í inn­rásinni, en enn hafa engar nið­ur­stöður verið kynnt­ar. Chilcot-­rann­sóknin svo­kall­aða er undir vax­andi þrýst­ingi og nú er talið lík­legt að stjórn­völd muni setja rann­sókn­ar­nefnd­inni tíma­mörk og krefj­ist þess að hún skili af sér á næsta ári. Búist er við því að Blair og aðrir ráða­menn þessa tíma verði harð­lega gagn­rýnd­ir.

Eins og áður kom fram hefur Blair aldrei beðist afsök­unar á inn­rásinni í Írak, en þegar hann kom fyrir Chilcot-­nefnd­ina árið 2011 sagð­ist hann harma mann­fallið sem orðið hefði. Ed Mili­band, sem síðar varð for­maður Verka­manna­flokks­ins, hefur ekki heldur beðist afsök­unar fyrir hönd flokks­ins en sagði árið 2010 að það hafi verið rangt að fara í stríð.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None