Vinnuveitendur hafa borgað 39 milljarða af húsnæðislánum þeirra sem nýta séreign

Alls hefur um fimmtungur þjóðarinnar nýtt sér úrræði til að greiða niður húsnæðislán skattfrjálst um 110 milljarða króna með ráðstöfun séreignarsparnaðar. Framlag vinnuveitenda er um 35 prósent af þeirri upphæð.

1. maí 2019
Auglýsing

Alls hafa þeir Íslend­ingar sem velja að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði sínum til að greiða niður hús­næð­is­lán greitt þau niður um 109,9 millj­arða króna frá miðju ári 2014 í ann­ars vegar almennu úrræði og hins vegar undir hatti úrræðis sem kall­ast „Fyrsta fast­eign“. Þessi ráð­stöfun er skatt­frjáls og ávinn­ingur þessa hóps í upp­söfn­uðum skattafslætti er áætluð 26,8 millj­arðar króna. Alls hafa 38 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, eða 21 pró­sent þjóð­ar­innar í heild, nýtt sér umrædd úrræð­i. 

Þeir sem nýta sér sér­­­­­­­­­eign­­­­­ar­líf­eyr­is­­­­­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán sitt sam­­­­­kvæmt úrræðum sem stjórn­­­­­völd hafa inn­­­­­­­­­leitt á und­an­­­­­förnum árum fá líka annan ávinn­ing.

Auglýsing
Það að safna sér­eign­ar­sparn­aði felur nefni­lega í sér mót­fram­lag frá vinn­u­veit­enda sem er ígildi launa­hækk­­­­­un­­­­­ar. Þar er um að ræða launa­hækkun sem er lög­­­fest og stendur ein­ungis þeim til boða sem velja að safna í sér­­­eign með þessum hætti. Sam­tals hafa vinn­u­veit­endur greitt niður 38,6 millj­­arða króna af hús­næð­is­lánum þessa hóps á und­an­­förnum árum. Alls nemur fram­lag vinnu­veit­enda til þeirra sem hafa nýtt sér almenna úrræðið 32,9 millj­örðum króna en fram­lag þeirra til þeirra sem hafa nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ nemur 5,7 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í tölum sem fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarn­ann.

Fjölgað um 27 pró­sent á einu ári

Það þýðir að hóp­ur­inn sem nýtt hefur sér úrræðin hefur notað sam­tals 71,2 millj­arða króna af eigin sér­eign­ar­sparn­aði til að borga inn á hús­næð­is­lán eða sem útborgun fyrir hús­næði frá árinu 2014. 

Um er að ræða hóp sem telur alls 79.747 manns. Hann skipt­ist þannig að 62.400 hafa nýtt sér almenna úrræði en 17.347 hafa nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ frá því að það úrræði varð virkt árið 2017. Þeim sem nýtt hafa sér úrræðin hefur fjölgað um tæp 27 pró­­sent á einu ári.

Í skýrslu sér­­­­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækk­­­­un sem unnin var í aðdrag­anda þess að almenna úrræð­inu var hleypt af stokk­unum árið 2014 kom fram að með­­­­al­­­­launa­­­­tekjur fjöl­­­­skyldna sem spör­uðu í sér­­­­­­­eign og skuld­uðu í fast­­­­eign væri mun hærri en með­­­­al­­­­launa­­­­tekjur þeirra sem spara ekki. „Al­­­­mennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­­­­­­­eigna­líf­eyr­is­­­­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ stóð orð­rétt í skýrsl­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent