VIRK mun ekki taka við skjólstæðingum ríkis ef fullt framlag fæst ekki

10016394766-a517f60534-z.jpg
Auglýsing

VIRK- starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður mun ekki taka við ein­stak­lingum sem standa utan vinnu­mark­að­ar, eru örorku­líf­eyr­is­þegar eða skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana á árinu 2015 að óbreyttu. Stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins til­kynnti Eygló Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, þetta bréfleiðis á fimmtu­dag í kjöl­far þess að fjár­lög, sem gera ráð fyrir að fram­lag rík­is­ins til VIRK á árinu 2015 verði 200 millj­ónir króna, voru sam­þykkt. Sam­kvæmt lögum og samn­ingum sem hafa verið und­ir­rit­aðir átti fram­lag rík­is­ins til VIRK að vera 1,1 millj­arður króna á árinu 2015.

VIRK mun því ekki taka við þeim 200 millj­ónum króna sem sjóðnum er skammtað á fjár­lög­um. Í bréf­inu segir enn­fremur að nú liggi „fyrir að ríkið mun ekki að standa við sam­komu­lagið og því er VIRK nauð­beygt til að til­kynna starfsend­ur­hæf­ing­ar­stöðv­unum um breyttar for­sendur þjón­ustu­kaupa á næsta ári“. Því mun­i ­VIRK „ekki geta tekið ein­stak­linga í þjón­ustu á árinu 2015 sem ekki er greitt iðgjald af í sjóð­inn".

Ríkið hefur ekki greitt sinn hluta



Virk er starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður sem stofn­aður var af Alþýðu­sam­bandi Íslands (ASÍ) og Sam­tökum atvinnu­lífs­ins (SA) í maí 2008. Í jan­úar 2009 var svo und­ir­rituð ný stofn­skrá og þá komu stétt­ar­fé­lög og atvinnu­rek­endur á opin­berum vinnu­mark­aði að sjóðn­um. Til­urð sjóðs­ins byggir á sam­komu­lagi milli þeirra sem að honum standa um nýtt fyr­ir­komu­lag starfsend­ur­hæf­ingar í kjara­samn­ingum á vinnu­mark­aði sem gert var árið 2008.

Það fram­lag átti meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­laus­ir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félagsmálastofnana.

Auglýsing

Síðan þá hafa atvinnu­rek­endur og líf­eyr­is­sjóðir greitt hlut­fall af stofni iðgjalds til sjóðs­ins til að standa undir rekstri hans og starfsend­ur­hæf­ingu þeirra sem eru virkir á atvinnu­mark­aði. Ríkið átti síð­an, sam­kvæmt lögum sem sam­þykkt voru árið 2012 og samn­ingum sem voru gerðir þegar VIRK var sett á fót,  að greiða fram­lag til sjóðs­ins. Það fram­lag átti meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­laus­ir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana. Í ljósi þess hefur VIRK sinnt þeim skjól­stæð­ingum sem ríkið átti að greiða kostnað af. Ríkið hefur hins vegar ekki borgað sinn hluta.

Hafna fram­lagi rík­is­ins



Í fyrra, árið 2013, var gert óform­legt sam­komu­lag um að fresta fram­lagi rík­is­ins um eitt ár gegn því að það kæmi inn árið 2015. Fram­lagið átti að nema 1,3 millj­örðum króna. Þegar fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar var kynnt í haust var hins vegar ekki gert ráð fyrir neinu fram­lagi. Þegar fjár­lögin voru loks sam­þykkt í þess­ari viku hafði fram­lagið hækkað úr 0 í 200 millj­ónir króna.

Í bréfi stjórn­ar­for­manns VIRK til ráð­herra seg­ir: „Engar við­ræður hafa átt sér stað við for­svars­menn VIRK vegna þess­arar fjár­hæð­ar. Full­kom­lega óljóst er hvaða breyt­ingu þessi fjár­hæð á að hafa á rétt­indi hugs­an­legra skjól­stæð­inga VIRK eða skyldur VIRK gagn­vart þeim. Þá verður ekki séð að umræddar 200 millj­ónir breyti neinu er varðar við­horf stjórn­valda til sam­starfs við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og líf­eyr­is­sjóði um upp­bygg­ingu á atvinnu­tengdri starfsend­ur­hæf­ingu. Stjórn VIRK sér því engan mögu­leika á því að taka við þess­ari greiðslu“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None