Vísir braut samninga þegar fyrirtækið hætti fiskvinnslu á Húsavík

visir_vef.jpg
Auglýsing

Félags­dómur hefur úrskurðað að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Vísir hf. hafi brotið gegn ákvæðum kjara­samn­inga þegar fyr­ir­tækið hætti fisk­vinnslu á Húsa­vík. Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) rak málið fyrir dómn­um, fyrir hönd Starfs­greina­sam­bands Íslands vegna Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags, gegn Sam­tökum atvinnu­lífs­ins (SA) vegna Vís­is. Greint er frá nið­ur­stöðu Félags­dóms á heima­síðu Fram­sýn­ar.

Til­drög máls­ins eru þau að Vís­ir, sem rekið hefur fisk­vinnslur í Grinda­vík, Djúpa­vogi, Húsa­vík og Þing­eyri, tók ákvörðun í mars um að flytja alla starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins til Grinda­vík­ur. Þann 1. apríl síð­ast­lið­inn var starfs­fólki Vísis á Húsa­vík til­kynnt um lang­vinna rekstr­ar­stöðvun fisk­vinnsl­unnar vegna hrá­efn­is­skorts. Hinn 1. maí síð­ast­lið­inn var svo starfs­stöð Vísis á Húsa­vík lok­að.

Ekki hægt að kenna hrá­efn­is­skorti um



Fram­sýn stétt­ar­fé­lag taldi rang­lega að verki staðið í mál­inu, ekki væri um rekstr­ar­stöðvun að ræða í skiln­ingi kjara­samn­inga. Verið væri að leggja niður starf­semi Vísis á Húsa­vík, og til stæði að opna frysti­hús í Grinda­vík. Þá hafi engum hrá­efn­is­skorti verið til að dreifa sem rétt­lætt gæti rekstr­ar­stöðvun sam­kvæmd lögum og kjara­samn­ing­um.

Sam­kvæmt frétt á heima­síðu Fram­sýn­ar, urðu for­svars­menn Vísis ekki við áskor­unum stétt­ar­fé­lags­ins þess efnis að standa rétt að málum gagn­vart starfs­fólki sínu og eftir atvikum segja því upp með samn­ings­bundnum upp­sagn­ar­fresti og bjóða nýtt starf á nýjum stað. And­mæli stétt­ar­fé­lags­ins urðu til þess að þeim starfs­mönnum sem kusu að þiggja ekki nýtt starf í Grinda­vík, var sagt upp með samn­ings­bundnum hætti. Þar sem Vísir féllst ekki á sjón­ar­mið Fram­sýn­ar, að ekki væri um að ræða rekstr­ar­stöðvun vegna hrá­efn­is­skorts í skiln­ingi kjara­samn­inga, var höfðað mál á hendur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins fyrir Félags­dómi til að fá úr því skorið hvort fram­kvæmd Vísis sam­rýmd­ist ákvæðum kjara­samn­inga, er tryggir verka­fólki kaup­trygg­ingu í langvar­andi rekstr­ar­stöðv­un.

Auglýsing

Stöðvun fisk­vinnsl­unnar átti aldrei að vera tíma­bundin



Fé­lags­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að það lægi fyrir að stöðvun fisk­vinnsl­unnar á Húsa­vík hafi aldrei átt að vera tíma­bund­in, eða standa aðeins meðan hrá­efn­is­skortur varði. Þvert á móti hafi verið ráð fyrir því gert áður en vinnslu­stöðv­unin var til­kynnt að vinnsla myndi ekki hefj­ast aftur á Húsa­vík. Engu máli skipti þó Vísir leiddi í ljós að afla­heim­ildir fyr­ir­tæk­is­ins dyggðu ekki til að halda uppi fullri starf­semi á öllum starfs­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins út fisk­veiði­ár­ið.

Dóm­ur­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að túlka bæri ákvæði kjara­samn­inga á þann veg að vinnslu­stöðvun hlyti að vera tíma­bund­inn, það er meðan hrá­efn­is­skortur var­ir, en ákvæð­inu yrði ekki beitt þegar fyr­ir­sjá­an­legt væri að starf­semi hæf­ist ekki að nýju að liðnum þeim sex mán­aða hámarks­tíma sem mælt sé fyrir um í ákvæð­inu. Félags­dómur féllst því á kröfur ASÍ og dæmdi að rekstr­ar­stöðvun Vísis á Húsa­vík hafi brotið gegn ákvæðum kjara­samn­inga, og dæmdi Vísir til að greiða stefn­anda 400 þús­und krónur í máls­kostn­að.

Hægt er að nálg­ast dóm Félags­dóms hér að neð­an.

Domur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None