Vodafone og Nova fá að vinna saman að rekstri dreifikerfis

13958697800-216bb58dff-z.jpg
Auglýsing

Voda­fone og Nova mega reka dreifi­kerfi fyrir far­síma­þjón­ustu sína sam­an, sam­kvæmt ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Fyr­ir­tækin ósk­uðu eftir því að þau fengju und­an­þágu til þess að stofna sam­eig­in­legt félag utan um þennan rekst­ur.

Til­kynnt var um að stofna ætti félag utan um sam­eig­in­legt dreifi­kerfi í jafnri eigu Voda­fone og Nova í nóv­em­ber 2013. Þá kom fram að und­ir­bún­ings­vinna hefði staðið yfir um hríð með vit­neskju Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og Póst- og fjar­skipta­stofn­un­ar. Þá kom fram að með sam­ein­ingu dreifi­kerfa fyr­ir­tækj­anna myndu skap­ast mikil tæki­færi til stækk­unar og að veru­legt hag­ræði næð­ist fram í fjár­fest­ingum og rekstri auk þess sem upp­bygg­ing og þétt­ing kerf­is­ins yrði hrað­ari en ann­ars.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið setur ákveðin skil­yrði fyrir því að fyr­ir­tækin fái að eiga með sér sam­starf um rekstur far­síma­dreifi­kerf­is­ins, en skil­yrðin eiga að vinna gegn því að sam­starfið hafi áhrif á sam­keppn­ina sem fyr­ir­tækin eiga að eiga í á mörk­uðum fyrir far­síma­þjón­ustu.

Auglýsing

Meðal ann­ars eiga fyr­ir­tækin að tryggja að stjórn­endur þeirra ­geti ekki setið saman í stjórn nýja félags­ins og koma í veg fyr­ir­ að sam­vinnan í þessu máli geti orðið til frekara sam­starfs sem myndi skaða sam­keppn­i. Þá eiga stjórn­endur og lyk­il­starfs­menn rekstr­ar­fé­lags dreifi­kerf­is­ins að vera óháð­ir.

Fleiri skil­yrði eru sett og seg­ist Sam­keppn­is­eft­ir­litið í til­kynn­ingu til fjöl­miðla muna birta ákvörðun sína um málið á heima­síðu sinni á næst­unni. Þar verðu settur fram rök­stuðn­ingur og nán­ari skýr­ingar á skil­yrð­unum sem sett eru fyrir ákvörð­un­inni.

Voda­fone hagn­að­ist um yfir millj­arð í fyrra

Fjar­skipti hf., móð­ur­fé­lag Voda­fo­ne, skil­aði árs­hluta­reikn­ingi fyrir fjórða árs­fjórð­ungs árs­ins 2014 í dag. Þar kom fram að hagn­aður félags­ins á síð­asta ári haf numi 1,1 millj­arði króna í fyrra og jókst hann um 29 pró­sent á milli ára. Það er í fyrsta sinn sem félagið skilar hagn­aði yfir millj­arð króna.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna þessa er haft eftir Stef­áni Sig­urðs­syni, for­stjóra félags­ins að arið 2014 hafi um verið um margt sér­stakt. "Fyrri hlut­inn ein­kennd­ist af mik­illi innri vinnu í tengsl­u­m við inn­viði og örygg­is­mál félags­ins en seinni hlut­inn af sókn á fjöl­mörg­um sviðum á sama tíma og ágætur árangur náð­ist á kostn­að­ar­hlið­inn­i."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None