Volkswagen seldi 11 milljón bíla með svindlkerfi

volkswagen1.jpg
Auglýsing

Dagar stjórn­enda Volkswa­gen-bíla­fram­leið­ands virð­ast vera taldir eftir að þessi næst stærsti bíla­fram­leið­andi heims við­ur­kenndi að hafa fram­leitt 11 milljón bíla og selt um allan heim með kerfi sem var ætlað að svindla á útblást­urs­próf­un­um.

Ang­ela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, er meðal þeirra þjóð­ar­leið­toga sem hafa tjáð sig um mál­ið. „Ég vona að allar stað­reyndir máls­ins verði uppi á borðum eins fljótt og auðið er,“ sagði hún og bætti við að umferð­ar­mála­ráð­herra Þýska­lands væri í beinum sam­skiptum við fyr­ir­tæk­ið.

Volkswagen hefur neitað því að Martin Winterkorn, þýskur for­stjóri Volkswa­gen, verði lát­inn fara og að Matthias Müll­er, for­maður stjórnar syst­ur­fé­lags­ins Porche taki við. Dag­blaðið Tagesspi­egel hafði eftir ónafn­greindum heim­ildum úr stjórn fyr­ir­tæk­is­ins að Winter­korn verði lát­inn fara.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur Hekla, umboðs­að­ili Volkswagen á Íslandi, ekki fengið upp­lýs­ingar um málið og getur ekki stað­fest hvort bílar með þessum bún­aði hafi verið seldir hér á landi.

Winter­korn sendi frá sér yfir­lýs­ingu síð­degis í dag þar sem hann sagð­ist sjálfur enn vera að viða að sér upp­lýs­ingum um mál­ið. „Mis­ferli hjá Volkswagen má aldrei ger­ast aft­ur,“ sagði hann og ítrek­aði að rann­sókn­ar­ferlið verði opið og gagn­rýn­ið.

FILE GERMANY BUSINESS VOLKSWAGEN Martin Winter­korn ásamt Matthias Müll­er. (Mynd: EPA)

 

Hluta­bréfa­verð í Volkswagen hefur hrunið síðan málið kom upp um helg­ina og segj­ast stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins nú hugs­an­lega þurfa að skuld­setja fyr­ir­tækið í fyrsta sinn, eftir að hafa sett 6,5 millj­arða evra til hliðar til þess að borga hugs­an­legar skaða­bætur og kostnað vegna svindls­ins.

Virði fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aði hefur fallið um þriðj­ung, eða því sem nemur 25 millj­örðum evra síð­ustu tvo daga. Hluta­bréfa­verð í öðrum evr­ópskum bíla­fram­leið­endum hefur einnig hrun­ið. Hið franska Peu­geot hefur fallið um sjö pró­sent, BMW um fimm pró­sent og Daim­ler (eig­andi Mercedes-Benz) hefur fallið um 5 pró­sent.

Kjarn­inn sagði frá því á sunnu­dag að Volkswagen hefði verið gert að end­ur­kalla 482 þús­und bíla í Banda­ríkj­unum vegna þess að hug­bún­að­ar­galli í bíl­unum gerðu það að verkum að þeir meng­uðu mun meira en þeir máttu gera sam­kvæmt banda­rískri lög­gjöf. Jafn­framt hefur Volkswagen verið sektað um 37.500 dali fyrir hvern bíl sem mælist ólög­leg­ur.

Winter­korn sendi frá sér yfir­lýs­ingu á sunnu­dag, og las hana upp tár­votur á blaða­manna­fundi. „Af­sak­ið“ sagði hann, og horfði síðan út í sal. Hann sagði við­skipta­vini og birgja fyr­ir­tæk­is­ins eiga skilið að fá afsök­un­ar­beiðni vegna þessa „galla“ sem fund­ist hefði í hug­bún­aði í bílum fyr­ir­tæk­is­ins. Sá bún­aður stýrir afl­stýr­ingu í vél­inni, og reynd­ist ýta undir alltof mikla losun á nítrógen oxíði, eða um fjör­tíu­falt meiri losun en leyfi­legt er.

Auk þess eru uppi ásak­anir um að fyr­ir­tækið hafa vís­vit­andi svindlað á próf­unum banda­rískra yfir­valda, en engar ákærur hafa verið gefnar út enn­þá. Sam­kvæmt umfjöllun Quartz og BBC er ekki úti­lokað að það verði gert og eru það þá æðstu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins sem þurfa að bera ábyrgð. Winter­korn fékk spurn­ingar frá blaða­mönn­unum á fund­in­um, um hugs­an­legt glæp­sam­legt athæfi, en neit­aði að tjá sig um þær.

Volkswagen er álitið varða í þýskum iðn­aði. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 1937 til þess að fram­leiða ódýra fjöl­skyldu­bíla fyrir þjóð­ina. Meira en hálf milljón manns starfar hjá fyr­ir­tæk­inu um allan heim og það stjórnar fjölda vöru­merkja auk Volkswagen eins og Audi, Bent­ley, Seat og Lamborg­hini.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None