Winterkorn hættir sem forstjóri Volkswagen vegna svindlsins

winterkorn.jpg
Auglýsing

Martin Winter­korn er hættur sem for­stjóri Volkswagen vegna útblást­urs­hneyksl­is­ins sem fyr­ir­tækið var staðið að í Banda­ríkj­unum á föstu­dag. Fyr­ir­tækið þýska hefur við­ur­kennt að hafa fram­leitt ell­efu milljón bíla sem voru for­rit­aðir til að svindla á mæl­ingum á útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Eins og Kjarn­inn greindi frá í morgun sat Winter­korn fund með stjórn fyr­ir­tæk­is­ins í dag þar sem hann var kraf­inn svara við því hvort hann hafi haft vit­neskju um svind­lið sem hef­ur, á aðeins tveimur dögum þurkað út meira en þriðj­ung af mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins, eða um 26 millj­arða evra við lokun mark­aða í gær.

Hekla, umboðs­að­ili Volkwagen á Íslandi, birti í dag yfir­lýs­ingu frá Volkswagen í Þýska­landi. Þar segir að Volkswagen vinni nú „hörðum höndum að því að greiða úr frá­vikum í til­teknum hug­bún­aði disil­véla“  en áréttað er að allar umræddar bif­reiðar séu öruggar og akst­urs­hæfar enda varðar málið aðeins útblástur meng­un­ar­efna. Fyr­ir­tækið seg­ist jafn­framt ætla að taka á sig allan þann kostnað sem fylgir úrræð­unum sem grípa þarf til. Ekki er hins vegar hægt að til­greina þær teg­undir og árgerðir sem um er að ræða, segir í yfir­lýs­ing­unni.

Auglýsing

Þá hefur hluta­bréfa­verð í evr­ópskum bíla­fram­leið­endum fallið með Volkswagen og talið er að þýskur efna­hagur muni láta á sjá, þegar frá líð­ur. Volkswagen mun að öllum lík­indum þurfa að borga him­in­háar sektir bæði í Banda­ríkj­unum og Evr­ópu vegna þessa.

Fyr­ir­fram er talið að Matthias Müll­er, yfir­maður hjá dótt­ur­fé­lag­inu Porsche, muni taka við stöðu Winter­korn hjá Volkswagen. Winter­korn hefur verið for­stjóri síðan árið 2007, tveimur árum áður en Volkswagen hóf að selja bíla sem búnir voru svindl­kerf­inu.

Hvernig svindl­aði Volkswagen eig­in­lega á próf­inu?



Sam­kvæmt Umhverf­is­ráði Banda­ríkj­anna, og John German, emb­ætt­is­manns­ins sem komst að hinu sanna, þá vissi tölva bíls­ins hvenær verið væri að prófa bíl­inn og hvenær ekki. Svo þegar bílnum var stungið í sam­band til að reikna útblást­ur­inn minnk­aði hann sjálf­krafa. Um leið og bíll­inn var svo tek­inn úr sam­bandi 40 fald­að­ist los­unin svo skyndi­lega.



Ekki er víst hvernig Volkswagen ætlar að tækla vanda­mál­ið; það má hugs­an­lega gera með hug­bún­að­ar­upp­færslu. Hjá bíla­blað­inu Consu­mer Reports, sem er virt meðal bíl­greina í Banda­ríkj­un­um, benda menn á að bíl­arnir muni tapa eig­in­leikum sínum við lag­fær­ingu á vand­an­um. „Það er mjög lík­legt að upp­færsla muni hafa áhrif á eyðslu og eig­in­leika bíls­ins,“ segir Jake Fis­her, yfir­maður bíl­próf­ana hjá blað­inu. Litlir dísel­bílar geta kom­ist lang­leið­ina að eyðslu bens­ínknú­inna „hy­brid“-bíla, svo það er kannski aug­ljóst hvers vegna við­skipta­vinir Volkswagen völdu þessa bíla.



The Guar­dian segir svo frá því í dag að sam­kvæmt grein­ingu þeirra á meng­un­inni sem Volkswagen kann að bera ábyrgð á hafi allir þessir 11 milljón bílar blásið nærri milljón tonnum af loft­meng­andi efnum út í and­rúms­loftið á hverju ári. Það sé um það bil jafn mikið og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá öllum orku­verum, bíl­um, iðn­aði og land­bún­aði á öllu Bret­landi.



GERMANY VOLKSWAGEN EMISSION

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None