Yfirlýsing frá Eiríki S. Svavarssyni: Átti ekki hagsmuna að gæta á þessum fundi

atvinnuveganefnd.000.jpg
Auglýsing

Eiríkur S. Svav­ars­son, lög­maður og einn eig­anda Matorku, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna fréttar Kjarn­ans í gær­kvöldi þar sem fjallað var um að hann hafi komið fyrir atvinnu­vega­nefnd þann 30. októ­ber síð­ast­lið­inn ­fyrir hönd Lög­manna­fé­lags Íslands til að ræða frum­varp um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi. Eiríkur segir í yfir­lýs­ingu að hann hafi ekki átt hags­muna að gæta á fund­inum né gagn­vart efn­is­at­riðum frum­varps­ins. Með frétta­flutn­ingi af mál­inu sé "að ástæðu­lausu  vegið að heil­indum mínum og starfs­heiðri."

Í frétt­inni var haft eftir Jóni Gunn­ars­syni, for­manni atvinnu­vega­nefndar að Ei­ríkur hafi ekki tekið fram að fyr­ir­tæki sem að hluta til væri í hans eigu væri í við­ræðum við atvinnu­vega­ráðu­neytið um íviln­un­ar­samn­ing á sama tíma og hann kom fyrir nefnd­ina. „Mér finnst þetta vera mjög sér­stakt. Menn eiga að hafa vit á því að halda sér til hliðar þegar svona hags­munir eru í húfi, “ sagði Jón í frétt­inni.

Kjarn­inn stendur að fullu leyti við frétt sína af mál­inu. Ekki er bent á neinar rang­færslur í frétt­inni í yfir­lýs­ingu Eiríks.

Auglýsing

 

Yfir­lýs­ing frá Eiríki S. Svav­ars­syni



"Í fréttum und­an­farin sól­ar­hring er leit­ast við að kasta rýrð á störf mín í laga­nefnd LMFÍ í ljósi þess að ég er einn fjöl­margra hlut­hafa Matorku ehf. en hlut­inn á ég ásamt eig­in­konu minni. Fréttir þessar lúta að því að ég hafi fyrir hönd laga­nefndar LMFÍ mætt fyrir Atvinnu­vega­nefnd til að gera grein fyrir umsögn nefnd­ar­innar án þess að ég hafi gert grein fyrir meintum „hags­muna­tengsl­um“ eins og það er orð­að.

Umrædd heild­ar­lög sem Atvinnu­vega­nefnd óskaði umsagnar laga­nefndar LMFÍ snerta ekki umsókn Matorku ehf. um nýfjár­fest­inga­samn­ing enda byggir umsókn Matorku, dags. 4. des­em­ber 2013, á lögum 99/2010 um íviln­anir vegna nýfjár­fest­inga á Íslandi.

Umsókn Matorku ehf. var á grund­velli þeirra laga en ekki frum­varps­ins sem óskað var umsagnar um. Það frum­varp tekur ekki til þeirra umsókna um íviln­anir sem byggja á öðrum lög­um, þ.e. lög nr. 99/2010. Ég átti því ekki hags­muna að gæta á þessum fundi eða gagn­vart efn­is­at­riðum þessa frum­varps.

Laga­nefnd LMFÍ fær fjölda frum­varpa til umsagnar ár hvert. Að gerð umsagnar LMFÍ í þessu til­viki komu nokkrir nefnd­ar­menn. Í þess­ari umsögn voru aðeins tekin til umfjöll­unar lög­fræði­leg atriði sem sneru almennt að mál­efnum nýfjár­fest­inga eins og þau birt­ust í við­kom­andi frum­varpi.

Með mjög skömmum fyr­ir­vara óskaði Atvinnu­vega­nefnd eftir að full­trúi úr laga­nefnd kæmi fyrir nefnd­ina þann 30. októ­ber s.l. Þar sem tveir aðrir full­trúar laga­nefndar gátu ekki mætt með svo skömmum fyr­ir­vara var þess óskað að ég mætti. Á fund­inum fór ég yfir þá umsögn sem laga­nefnd LMFÍ hafði unnið f.h. nefnd­ar­inn­ar. Í engu var þar vikið að Matorku eða umsóknum um íviln­anir almennt.

Ég lít ofan­greindar ásak­anir mjög alvar­legum augum því að með þeim og frétta­flutn­ingi sem þessum er að ástæðu­lausu alvar­lega vegið að heil­indum mínum og starfs­heiðri."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None