Yfirlýstur stuðningsmaður ISIS hefur óskað eftir hæli á Íslandi

isisi.jpg
Auglýsing

Hæsti­réttur Íslands hefur stað­fest úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem hafn­aði kröfu lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að tveir hæl­is­leit­endur verði úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald. ­Menn­irnir eru eft­ir­lýstir á Norðu­lönd­unum fyrir að hafa gefið yfir­völdum þar rangar per­sónu­upp­lýs­ingar um sig og sam­kvæmt frétt á mbl.is hefur verið farið fram á fram­sal þeirra. Í úrskurði Hér­aðs­dóms kemur fram að annar mað­ur­inn, sem kveðst vera fæddur árið 1998, sé yfir­lýstur stuðn­ings­maður ISIS hryðju­verka­sam­tak­anna, hann elski sam­tökin og vilji taka þátt í stríði fyrir guð.

Menn­irnir leit­uðu á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þeir sögð­ust vera bræður og að þeir hefðu komið til lands­ins dag­inn áður. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans komu menn­irnir til lands­ins frá Dan­mörku, þar sem lög­reglu­yf­ir­völd þurftu að hafa afskipti af þeim. Menn­irnir voru með engin skil­ríki með­ferðis þegar þeir komu á lög­reglu­stöð­ina. Þeir sóttu um hæli hér á landi og var komið í hús­næði á vegum Reykja­vík­ur­borg­ar, sá yngri var vistaður á vegum barna­verndar Reykja­vík­ur.

Hefur sýnt af sér sjálfs­skað­andi hegðun



Mað­ur­inn, sem kveðst vera fæddur árið 1998, fór fljót­lega að sýna af sér sjálfs­skað­andi hegð­un, sam­kvæmt grein­ar­gerð lög­reglu­stjóra sem minnst er á í úrskurði Hér­aðs­dóms. Hann hafi meðal ann­ars brennt gat á rúmið sitt og þá sagst vera að reyna að kveikja í sér. Þá hafi hann sýnt af sér ógn­andi hegðun gagn­vart starf­sólki barna­verndar Reykja­vík­ur, barið í veggi og stiga og unnið skemmdir á bif­reið starfs­manns. Hegðun hans hafi svo versnað til muna kvöldið áður en til stóð að senda hann í ald­urs­grein­ingu hjá tann­lækni.

Í grein­ar­gerð lög­reglu­stjóra kemur fram að lög­regla hafi fengið heim­ild barna­verndar til að skoða tölvu í eigu barna­verndar sem mað­ur­inn hafði notað meðan hann var vistaður hjá þeim. Við þá skoðun kom í ljós að mað­ur­inn hafði verið að skoða mikið af efni sem teng­ist hryðju­verka­sam­tök­unum eins og Íslamska rík­inu og Boko Haram, þar sem hann var meðal ann­ars að skoða mynd­bönd þar sem sjá má aftökur á fólki.

Auglýsing

Þegar mann­inum var til­kynnt um nið­ur­stöður ald­urs­grein­ingar tann­læknis brást hann ókvæða við og við­hafði hót­anir við við­stadda um að sprengja þús­und manns í loft upp ef hann yrði sendur úr landi. Þá sagði hann einnig að hann myndi fremja sjálfs­morð.

Lög­regla telur hættu stafa af mönn­unum



Meintur bróðir manns­ins var strax fyrsta sól­ar­hring­inn eftir að þeir sóttu um hæli hér á landi vistaður á bráða­mót­töku geð­deildar vegna sjálfs­vígs­hót­anna, og þá hafi hann örfáum dögum seinna verið lagður inn á bráða­mót­töku geð­deildar vegna hnífs­s­tungu sem hann sagð­ist hafa veit sér sjálf­ur. Í kjöl­farið var hann sendur aftur á geð­deild Land­spít­al­ans en þaðan var hann úrskurð­aður sam­dæg­urs.

Lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins byggði gæslu­varð­halds­kröfu sína meðal ann­ars á mati emb­ætt­is­ins að aðgerðir og athafnir mann­anna eftir að þeir komu til lands­ins séu þess eðlis af af þeim stafi hætta og óör­yggi.

Hæsti­réttur hafn­aði gæslu­varð­halds­kröfu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem emb­ættið hafi ekki reynt væg­ari úrræði en gæslu­varð­hald, ekki megi beita útlend­ing varð­haldi nema það sé nauð­syn­legt til að ná lög­mætu mark­miði, sem að er stefnt, og að því verði ekki náð með öðru og væg­ara móti.

Dómur Hæsta­rétt­ar.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None