Þjóðhættir – „Á jólunum er gleði og gaman“: Jólaveður, bækur og sveinar

Í lauf­léttum og skemmti­legum jóla­þætti fá Dag­rún og Vil­helm­ína til sín góða gesti.

Eiríkur Valdi­mars­son þjóð­fræð­ingur hjá Rann­sókna­setri Háskóla Íslands á Ströndum – þjóð­fræði­stofu, segir fréttir af starf­sem­inni. Í haust stóð Rann­sókna­setrið fyrir athygl­is­verðu nám­skeiði fyrir almenn­ing um ritun end­ur­minn­inga. Nám­skeiðið var vel sótt og tókst með ein­dæmum vel. Þá segir Eiríkur frá nýrri bók sem kom út nú í des­em­ber og nefn­ist Myndir og minn­ingar frá Strönd­um. Bókin er sam­starfs­verk­efni Rann­sókn­ar­set­urs­ins og Sauð­fjár­set­urs. Í bók­inni eru 42 frá­sagnir og mynd­ir, sem eru jafn fjöl­breyttar og þær eru margar og koma frá fólki á Ströndum eða sem hefur teng­ingar við svæð­ið. Mynd­irnar og frá­sagn­irn­ar. Eiríkur ræðir einnig ýmsa þjóð­trú tengda veðri og gefur góð ráð hvernig spá má fyrir um jóla­veðr­ið. 

Eva Þór­dís Eben­ez­er­dóttir dokt­or­snemi í þjóð­fræði segir frá jóla­svein­inum Stekkja­staur út frá nýstár­legu sjón­ar­horni. Stekkja­staur er þekktur fyrir að vera stirður og með staur­fót, en hvað þýðir það í raun? Í rann­sóknum sínum blandar Eva Þór­dís saman þjóð­fræði og fötl­un­ar­fræði og í þætt­inum greinir hún frá nið­ur­stöðum sínum varð­andi þennan áhuga­verða jóla­svein og birt­ing­ar­myndir hans.

Að lokum ræða Dag­rún og Vil­helm­ína við Mar­gréti Hösk­ulds­dóttur rit­höf­und. Bók hennar Dal­ur­inn kom út fyrr á þessu ári. Bókin segir frá Sif, ungum þjóð­fræði­nema sem dvelur í afskekktum dal vestur á fjörðum og skrifar þar loka­rit­gerð í þjóð­fræði. Dul­ar­fullir atburðir eiga sér stað og ýmsar þjóð­sagna­per­sónur og vættir koma við sög­u. 

Þjóð­hættir er hlað­varp sem fjallar um nýjar rann­sóknir og fjöl­breytta miðlun í þjóð­fræði. Umsjón hafa dr. Dag­rún Ósk Jóns­dóttir og Vil­helm­ína Jóns­dóttir kenn­arar í þjóð­fræði við Háskóla Íslands.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023