Mikilvægt synjunarvald en óskýr meðferð

Auglýsing

Af nýlegri könn­un ­sem ég réðst í um hlut­verk for­seta Íslands má ráða að fólki þyki synj­un­ar­vald­ið ­mik­il­vægt en leik­reglur um það óskýr­ar. Þetta er slæmt fyrir lýræði og lýð­rétt­indi.  Um 700 manns tóku þátt í könn­un­inni, þátt­taka var sjálf­val­in, svo vænta má að einkum hafi þar far­ið ­sér­stakt áhuga­fólk um stjórn­mál og stjórn­skip­an. En hóp­ur­inn var stór og ­nið­ur­stöður hans afger­andi.

For­seta­emb­ættið er áhrifa­mikið

80% telja að ­for­seta­emb­ættið sé áhrifa­valdur í íslensku sam­fé­lagi, sem er merki­legt fyrir þá ­sem segja það inn­an­tómt tákn. Svo er ekki sam­kvæmt þessu áliti. En mik­ill ­meiri­hluti vill ekki að for­seti blandi sér í deilur líð­andi stundar þótt svo hann geti verið áhrifa­valdur um mál­efni sem hann kýs að setja á odd­inn. Þetta er jafn­væg­is­list. En þá er komið að synj­un­ar­vald­inu. ,,Eins og nú er mál­u­m hátt­að” vilja 70% að for­seti hafi þetta vald, en heil 80% vilja að vald­inu sé beitt ,,”var­lega” eða sem “ör­ygg­is­vent­li” aðeins. Hug­mynd­inni um auk­ið ,,­for­setaræði” er því ræki­lega hafn­að.

Óskýrar leik­reglur

Spurt var:,,Að­eins núver­andi for­seti hefur beitt synj­un­ar­vald­in­u (­mál­skots­rétt­i), og það oftar en einu sinni, en fleiri for­setar hafa feng­ið á­skor­anir um slíkt án þess að hafa orðið við. Er að þínu mati skýrt hvenær og hvers vegna for­seti beitir þessu vald­i?”

Auglýsing

Um þetta mik­il­væga mál sem fólki er ­greini­lega hjart­fólgið var mik­ill sam­hljómur sem varpar ljósi á veik­leika í stjórn­kerfi okkar og lýð­ræð­is­fyr­ir­komu­lagi: Tæp 70% segja ,,frekar” eða ,,mjög ó­skýrt” hvenær og hvers vegna for­seti beitir synj­un­ar­vald­inu.

Valdið til fólks­ins

Á Fés­bók­ar­síðu kringum könn­un­ina ­sköp­uð­ust áhuga­verðar umræð­ur. Gísli Sig­urðs­son íslensku­fræð­ingur sagði með­al­ ann­ars við hóp­inn:

,,Það er and­stætt öllum mínum lýð­ræð­is­skiln­ingi að einn maður eigi að sitja uppi með raun­veru­legt vald til að ákveða hvort lög­um sé vísað til þjóð­ar­at­kvæðis eða ekki. Vilji fólk hafa mögu­leika á að málum frá­ Al­þingi sé vísað þá leið verða að gilda um það almennar reglur um að til­tek­ið hlut­fall atkvæð­is­bærra manna óski eftir þjóð­ar­at­kvæði - ekki for­seti þótt góð­ur­ ­sé. Það er auð­mýkj­andi fyrir borg­ara í frjálsu landi (ath við erum ekki þegn­ar eins eða neins) að senda bæn­ar­skrá til eins manns um að gera eitt­hvað sem veltur á hans per­sónu­lega vilja.”

Þetta er einmitt kjarni máls­ins.

Hvað ger­ist nú?

Eins og ég hef skrifað um og tal­að ­fyrir í meira en ára­tug tel ég að færa eigi rétt­inn sem felst í synj­un­ar­vald­in­u til fólks­ins eins og Gísli segir og margir krefj­ast. Til þess þarf lang­þráða ­stjórn­ar­skrár­breyt­ingu. Tak­ist ekki að knýja málið í gegn á þessu þingi er ­skyldu­verk næsta for­seta að skýra og skerpa á verk­lags­reglum um hvernig með­ skuli farið þegar fólk efnir til ,,bæna­skrár”. Afnema auð­mýk­ing­u ­geð­þótta­valds­ins. Til þess má kalla til færstu sér­fræð­inga og vísa í til­lög­ur ­stjórn­laga­ráðs. Hið end­an­lega vald verður áfram hjá for­seta, hjá því er ekki kom­ist meðan gamla stjórn­ar­skráin er í gildi, en næsti for­seti Íslands verð­ur­ að virða borg­ar­ana svo mik­ils að skýrar leik­reglur gildi um verk­lag í svona ­mik­il­vægum mál­um. Eftir þessu verður gengið í kosn­inga­bar­átt­unni sem í hönd ­fer.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None