Árþúsundagömul reiði

Auglýsing

Hugs­an­lega hefð­i ég ekki mætt í mót­mæla­stöðu við lög­reglu­stöð­ina í gær hefði ég fylgst með­ ­sam­fé­lags­miðlum fyrr um dag­inn. Hugs­an­lega. Ég lít á það sem lög­brot að birta ­myndir af meintum glæpa­mönnum og ég kalla það hat­ursum­ræðu að skrifa um þá níð. ­Samt er ég fegin að ég fór vegna þess að á þeirri stundu er ég stóð í ljósa­skipt­unum á milli lög­reglu­stöðv­ar­innar og húss Stíga­móta fékk ég að finna mörg ­þús­und ára gamla reiði mína. Reiði sem ég hef fengið í arf frá konum og körlu­m ­fyrri kyn­slóða. 

Ég hafði það líka á til­finn­ing­unni að fólk kæmi ekki bara vegna þess ein­staka máls sem nýlega kom upp heldur vegna þess að reiðin flæddi upp úr fleiri skálum en mín­um. Við sættum okkur ekki lengur við að þeir sterk­ari, í hvaða skiln­ingi orðs­ins sem er, geti í krafti stöðu sinnar beitt þá veik­ari ­valdi. Það er kjarni máls­ins og þess vegna er magnað að lifa þá tíma sem við nú lif­um. Tíma þegar verið er að brjóta múra þagnar og þögg­un­ar.

Í útvarp­inu í morg­un­ ­tal­aði lög­fræð­ingur háðs­lega um þá sem ,,eiga” kyn­ferð­is­af­brotaum­ræð­una. Auð­vitað er erfitt fyrir málsvara þeirra sem átt hafa umræð­una í árþús­undir að horfa upp á valda­hlut­föllin raskast. Lög­fræð­ing­ur­inn sagð­ist heldur ekki vita til þess að áður hefði verið kært fyrir munn­mök sem fælust í því að kona hefð­i ­getn­að­ar­lim upp í sér örskamma stund. Án þess að ég viti nokkuð um til­drög um­ræddrar nauðg­un­ar­kæru vil ég benda hæst­virtum lög­manni á að alvar­leik­i nauðg­unar er ekki mældur í tíma­lengd brots­ins heldur meðal ann­ars í ólíkri ­valda­stöðu þol­anda og ger­anda.

Auglýsing

Sjálf­sagt eru ­dæmi þess að nauðg­anir séu kærðar að til­efn­is­lausu þó að flestir geri sér­ lík­lega grein fyrir því að ýmis­legt þarf­legra er hægt að gera við tím­ann en að eyða honum í að reyna að kæra kyn­ferð­is­af­brot. Ég held að vanda­málið í þess­ari um­ræðu felist í því að þeir sem ,,áttu” umræð­una og þeir sem ,,eiga” hana nún­a eru ekki að tala um sama hlut­inn. Þeir sem áttu umræð­una tala gjarnan um ­tækni­leg atriði eins og tíma­lengd á meðan þeir sem nú eiga hana tala um þá ­til­finn­ingu ber­skjöld­unar sem fórn­ar­lömb finna fyrir það sem eftir lifir æv­inn­ar.

Í gær horfði ég á sól­ina setj­ast bak við lög­reglu­stöð­ina í Reykja­vík. Kannski reis ný sól í morg­un, sól sem skín yfir upp­lýstri og eig­anda­lausri umræðu um kyn­ferð­is­af­brot ­sem færir okkur í fyll­ingu tím­ans sam­fé­lag án nauð­gana.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None