Að taka umræðuna

Auglýsing

Vopna­burð­ur­ lög­regl­unnar hefur verið mikið hita­mál í Íslensku sam­fé­lagi síð­ustu vikur og ­mán­uði. Spurn­ingar um hvar lög­reglan á að geyma skot­vopn, hver á að hafa aðgang að þeim, með hvaða hætti er best að nálg­ast þær og hvenær er rétt­læt­an­legt að nota þær eru spurn­ingar sem nú brenna á mörg­um. Reynum við sem sam­fé­lag eft­ir bestu getu að svara þeim. Samt hefur ríkt ríkt þögn frá þeim aðilum sem í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi ættu að fagna allri umræðu um mál­ið. En þeir aðilar eru lög­reglan og Inn­an­rík­is­ráð­neyt­ið,­sem hefur yfir­um­sjón með lög­regl­unni.



Öll viljum við svör við spurn­ingum sem brenna á okkur í þessu erf­iða máli, því þarna erum við að ræða grund­vallar breyt­ingar á því hvernig hin almenni borg­ari ­sér lög­regl­una. Per­sónu­lega væri ég til í að fá svör við fjölda spurn­inga sem brenna á mér um þetta mál og ég veit að ég er ekki sá eini sem langar að vita svör við þessum spurn­ingum um fram­tíð sam­bands hins almenna borg­ara við hin al­menna lög­reglu­mann hér á landi. Sumsé svör við hvort við viljum sjá lög­reglu ­sem á auð­velt með að ná í vopn og þar með getur mögu­lega átt það í hættu á að nota þau þegar ekki á við eða viljum við lög­reglu sem þarf sér­stak­lega að kalla eftir því að vopnum sé komið til þeirra sem lengir þá bið tím­ann þar til­ lögrelgan getur brugð­ist við?

Hvernig virka þessir vopna­kassar sem eru í bíl­un­um? Hversu auð­velt er fyr­ir­ lög­reglu­mann að opna kass­ann án sam­þykkis yfir­manns síns? Hveru oft er breytt um aðgangs­orð á kass­anum og hversu lík­legt er það að yfir­maður sé að fara neita al­mennum lög­reglu­manni að nota skot­vopn eftir að beiðni hefur borist? Hvenær á síð­ustu 10 árum hefur sú staða komið upp að lög­reglan hafi ekki getað beð­ið eftir skot­vopnum frá sér­sveit­inni?



Þessar spurn­ingar og fleiri brenna á mér og sam­fé­lag­inu í heild en æpand­i þögnin sem heyr­ist frá lög­reglu og ráðu­neyti gerir það að verkum að við fáum ekki svör. Milli lög­reglu og borg­ara þarf að ríkja traust og lög­reglan þarf að vera í virku sam­tali við borg­ara til þess að tryggja það traust. Óska ég því hér með eftir því að lög­reglan og ráðu­neytið svari þessum spurn­ingum með öðru en bara því að „þetta eigi sér langan aðdrag­anda og að ekki séu um að ræða ­auk­ingu i vopna­búri lög­regl­un­ar“. Með sam­ræð­unni einni getur nauð­syn­legt traust ­ríkt á milli lögrel­unnar og borg­ar­anna sem hún á að vernda.



Höf­undur er fyrr­ver­andi for­mað­ur­ Hall­veigar - Ungra Jafn­að­ar­manna í Reykja­víkGrein þessi byggir á per­sónu­legum skoð­unum höf­undar og end­ur­speglar ekki ­sam­þykkta stefnu félags­ins.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None