Var umfangsmikil umfjöllun um óveðrið liður í stærra plani?

365.jpg
Auglýsing

Allir fjöl­miðlar á Íslandi fjöll­uðu um óveðrið mikla sem geis­aði í gær, eðli máls­ins sam­kvæmt. Í bak­her­berg­inu tóku menn hins vegar eftir því að frétta­stofa 365 var með mjög umfangs­mikla umfjöll­un. Jafn­vel óvenju­lega umfangs­mikla, þótt fréttum af þessu tagi sé iðu­lega vel sinnt þar. Ekki aðeins voru sagðar tugir frétta á Vísi yfir dag­inn, fram á nótt og aftur í dag. Heldur voru að minnsta kosti tveir auka­frétta­tímar í sjón­varp­inu áður en veðrið skall með fullum þunga á og dag­skráin á Bylgj­unni var að hluta til lögð undir það sem 365 kall­aði óveð­ursvakt­ina. Þá stóðu fjórir sjón­varps­frétta­menn þessa óveð­ursvakt, fleiri en oft eru á allri vakt­inni hjá Stöð 2 á venju­legum deg­i. 

Stjórn­endur og aðrir innan her­búða 365 hafa verið dug­legir að gagn­rýna RÚV í langan tíma, nú síð­ast í kjöl­far skýrslu um stöðu RÚV. Í skýrsl­unni var gerður sam­an­burður á rekstri RÚV og 365. Í kjöl­far skýrsl­unnar sagði rit­stjóri 365 m.a. að helm­ingi fleiri frétta­menn væru að störfum hjá RÚV en 365 og stöðu­gildi í sam­an­burð­ar­hæfum rekstri væru ríf­lega tvö­falt fleiri hjá RÚV. „Kannski er sam­an­burður ekki sann­gjarn, en varla skýrir „al­manna­þjón­ustu­hlut­verk­ið“ allan mun­inn,“ skrif­aði Kristín Þor­steins­dótt­ir, og hafði almanna­þjón­ustu­hlut­verk RÚV í gæsa­löpp­um. Iðu­lega heyr­ist sá mál­flutn­ing­ur, og ekki bara frá 365, að einka­reknir fjöl­miðlar geti vel sinnt því hlut­verki sem Rík­is­út­varp­inu er ætl­að, og meðal ann­ars almanna­þjón­ustu­hlut­verk­inu sem RÚV er ætlað að sinna sam­kvæmt lög­um. Þetta hefur verið notað til að rök­styðja rót­tækar breyt­ingar og/eða einka­væð­ingu á Rík­is­út­varp­in­u. 

Í ljósi þessa hefur því verið velt upp í bak­her­berg­inu hvort umfangs­mikil umfjöllun 365 í gær hafi verið ákveðin með þetta á bak við eyrað, og hafi verið liður í því að reyna að sýna fram á að það sem að RÚV geri geti aðrir gert lík­a? 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiBakherbergið
None