Hugsum saman til framtíðar

Climate justice - Mynd: birgir
Auglýsing

Lofts­lagsráðstefnan í París hefur verið kölluð mik­ilvægasti fundur ald­ar­inn­ar. Ástæðan er sú að lofts­lags­breyt­ingar af manna völdum ógna framtíð mann­kyns og ef ekki verður gripið til aðgerða nú kann að vera of seint að gera neitt til að snúa þróuninni við.

Markmið fund­ar­ins var að ríki heims­ins kæmu sér saman um að hlýnun yrði innan við tvær gráður, helst ekki meira en ein og hálf gráða en slík hlýnun mun t.d. hafa það í för með sér að mörg eyríki í Kyrra­haf­inu munu hverfa undir haf og íbúar þeirra munu þurfa að taka sig upp með manni og mús og finna sér annað stað á jörðinni.

Á fund­inum virt­ust nánast allir sammála um að það yrði að ná ein­hverju slíku markmiði en ekki endi­lega um hvað þyrfti að gera til að ná því. Ríki heims eru enn að veita opin­bert fé til að fram­leiða óend­urnýjan­lega orku­gjafa, s.s. olíu, kol og gas. Raunar er opin­ber stuðningur við óend­urnýjan­lega orku­gjafa tals­vert meiri en við end­urnýjan­lega orku­gjafa sem er þvert á öll opin­ber markmið. Þannig virðast stundum orð og gjörðir ekki fara saman enda eru ríkir hags­munir sem toga í ólíkar áttir.

Auglýsing

Í París var deilt um fjármuni, hve miklu ætti að vera til að styrkja þróunarlöndin til að draga úr los­un, breyta atvinnu­upp­bygg­ingu og orku­notk­un, rækta land og skóg. Álitamál var hve þétt ætti að uppfæra markmið samlomu­lags­ins, hvort það ætti að vera á fimm ára fresti eða sjaldn­ar. Enn­fremur var deilt um það fjármagn sem þyrfti til að laga sig að þeim lofts­lags­breyt­ingum sem munu verða. Síðast en ekki síst var deilt um það hvort þróunarlöndin skulda eyríkjunum sem að öllum líkindum munu sökkva í sæ vegna lofts­lags­breyt­inga af manna völdum sann­girn­isbætur.

Sam­komu­lag í París mun ekki breyta neinu sjálfkrafa. Það mun hins vegar gefa okkur sam­eig­in­legan skiln­ing á því hvaða aðgerða er þörf og gefa okkur öllum; stjórnmálamönnum, embættismönnum, almenn­ingi og fyr­irtækjum, tæki til að fylgj­ast með því að unnið verði að þeim aðgerðum, von­andi með eins gagnsæjum og lýðræðislegum hætti eins og unnt er.

Það er okkar sannfæring að stjórnmálamenn úr ólíkum áttum eigi að taka höndum saman um þetta verk­efni og vinna að heil­indum af því að sporna gegn frek­ari lofts­lags­breyt­ingum og tryggja þannig fólki um heim allan mannsæmandi lífsskilyrði til langrar framtíðar. Það er ábyrgð okkar gagn­vart kom­andi kynslóðum.

Birgitta Jónsdóttir, Höskuldur Þórhalls­son, Katrín Jak­obsdóttir, Ragn­heiður Ríkharðsdóttir, Róbert Mars­hall og Val­gerður Bjarnadóttir.

Höfundar voru fulltrúar Alþingis á lofts­lagsráðstefn­unni í París. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar
None